3. fundur
3. fundur
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
07.05.2012
Kl. 16:30 - 16:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - Formaður
- Birna Ólafsdóttir - Aðalmaður
- Björn Már Ólafsson - Aðalmaður
- Sigurjóna Sverrisdóttir - Aðalmaður
- Kristín B Björgvinsdóttir - Varamaður
Ritari
- Hulda Hauksdóttir
Dagskrá
01
Kynning á nýrri fundagátt
Hulda Hauksdóttir upplýsingafulltrúi kynnti nýja fundargátt fyrir nefndarmenn.
02
Jazzhátíð Garðabæjar 2012
Farið var yfir endanlega dagskrá Jazzhátíðar Garðabæjar sem verður haldin dagana 17.-19. maí nk. Íslandsbanki í Garðabæ styður dyggilega við hátíðina eins og undanfarin ár. Farið var yfir kynningarmál vegna hátíðarinnar og kostnað.
03
Menningaruppskeruhátíð
Fyrirhugað er að halda menningaruppskeruhátíð fimmtudaginn 24. maí nk. á Garðaholti frá kl. 17-19. Farið var yfir minnisblað frá síðasta fundi um hátíðina og rætt um umgjörð.
04
Hvatningarsjóður fyrir unga listamenn 2012
Kristín Björgvinsdóttir vék af fundi undir þessum lið.
Auglýst var eftir umsóknum úr Hvatningarsjóð fyrir unga listamenn í apríl og umsóknarfrestur var fram í byrjun maí. Farið var yfir umsóknir sem hafa borist í Hvatningarsjóð fyrir unga listamenn. Rætt var ítarlega um styrkveitingar miðað við þær umsóknir sem liggja fyrir. Óskað verður eftir nánari upplýsingum um tiltekin verkefni frá umsækjendum. Umræðu verður framhaldið á næsta fundi nefndarinnar eftir viku.
06
Kynningar og önnur mál
<P>Sagt var frá vel heppnaðri sögugöngu laugardaginn 5. apríl sl. þegar Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur fór í göngu um Silfurtúnið. Framundan er söguganga þriðjudaginn 8. maí með Einari Má Guðmundssyni um Vífilsstaði. </P><P> </P>