1. fundur
1. fundur
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
í Turnherbergi 3. hæð bæjarskrifstofum
12.01.2012
Kl. 17:00 - 17:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - Formaður
- Birna Ólafsdóttir - Aðalmaður
- Björn Már Ólafsson - Aðalmaður
- Sigurjóna Sverrisdóttir - Aðalmaður
- Kristín B Björgvinsdóttir - Varamaður
Ritari
- Hulda Hauksdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1201125
01
Kynning á nýrri fundagátt

Hulda Hauksdóttir upplýsingafulltrúi sagði frá nýju fundarkerfi sem verið er að innleiða og sagði frá nýrri fundargátt fyrir nefndarmenn. Fundargáttin verður sýnd nánar á næsta fundi nefndarinnar.

Málsnúmer 1110314
02
Hugmynd um tónleika með íslenska saxófónkvartettinum

Á síðasta fundi nefndarinnar var tekið jákvætt í samstarf við Íslenska saxófónkvartettinn um tónleikahald í sal Tónlistarskóla Garðabæjar. Fyrirhugað er að tónleikarnir verði haldnir í byrjun febrúar. Upplýsingafulltrúa falið að ræða nánar við Peter Tompkins um kynningarmál fyrir tónleikana. Hugmyndin er að nemendur í Tónlistarskólanum fái ókeypis aðgang inn á tónleikana og þeir kynntir sérstaklega í skólanum.

Málsnúmer 1201084
03
Jazzhátíð Garðabæjar 2012

Greint var frá undirbúningi við jazzhátíð Garðabæjar sem verður haldin í sjöunda sinn á vorönn með upphaf á Sumardaginn fyrsta. Sigurður Flosason tónlistarmaður verður áfram listrænn stjórnandi hátíðarinnar og unnið er að drögum að dagskrá sem verður kynnt nánar í febrúar. Rætt var um hugsanlega tengingu jazzhátíðarinnar við Listadaga barna og ungmenna í Garðabæ og nefndarmenn komu með ýmsar tillögur í þeim efnum sem verða skoðaðar nánar.

Málsnúmer 1109395
04
Listadagar barna og ungmenna 2012

Sagt var frá undirbúningi við Listadaga barna og ungmenna sem verða haldnir í lok apríl á þessu ári. Tengiliðir leik- og grunnskólakennara hafa hist og undirbúningur að dagskrá í hverjum skóla er hafinn. Á haustönn hafa elstu börn leikskólanna og yngstu börn grunnskólanna tekið þátt í hljóðfærasmiðju og búið til ýmis hljóðfæri sem skólarnir geta unnið áfram með. Á vorönn verður boðið upp á danskennslu í tengslum við undirbúning fyrir listadagana. Nefndarmenn ræddu um upplýsingastreymi til foreldra um listadagana og hvernig hægt væri að bæta úr því.

Málsnúmer 2011030184
05
Hvatningarsjóður til ungra listamanna

Rætt var um útfærslu á hvatningarsjóði til ungra listamanna og hvort hægt væri að halda menningarhátíð/samkomu að vori þar sem viðurkenningar og styrkir til ungra listamanna væru afhentir. Rætt var um tengingu við árlega útnefningu bæjarlistamanns. Formaður og upplýsingafulltrúi munu taka saman minnisblað um málið og það verður rætt nánar á næsta fundi.

Málsnúmer 1112081
06
Safnanótt 2012

Safnanótt verður haldin föstudagskvöldið 10. febrúar nk. og þriðja árið í röð er öllum söfnum á höfuðborgarsvæðinu boðið að vera með. Í Hönnunarsafni Íslands og Bókasafni Garðabæjar er búið að skipuleggja dagskrá þetta kvöld með svipuðum hætti og í fyrra.

Drög að dagskrá var lögð fram og samþykkt var að styrkja verkefnið með stuðningi við tónlistaratriði, rútuferð í Krók o.fl. en auk þess hafa söfnin fengið styrk úr sérstökum Safnanætursjóði sem öll söfn gátu sótt um.

Málsnúmer 1201151
07
Verkefni ársins

Farið var yfir fjárveitingar til nefndarinnar og möguleika á viðbótarverkefnum. Rætt var um ýmis verkefni eins og menningargöngur í samstarfi við Bókasafn Garðabæjar, menningaruppákomur utandyra, samstarf við Grósku um Jónsmessugleði og möguleika í tengslum við þá hátíð.

Málsnúmer 1201151
08
Kynningar og önnur mál

Rædd var hugmynd að tónleikum sem hægt væri að halda í mars eða maí. Verkefnið verður skoðað nánar og kynnt betur á næsta fundi.