Listadagar barna og ungmenna 2012
Málsnúmer 1109395
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
1. fundur
<DIV>Sagt var frá undirbúningi við Listadaga barna og ungmenna sem verða haldnir í lok apríl á þessu ári. Tengiliðir leik- og grunnskólakennara hafa hist og undirbúningur að dagskrá í hverjum skóla er hafinn. Á haustönn hafa elstu börn leikskólanna og yngstu börn grunnskólanna tekið þátt í hljóðfærasmiðju og búið til ýmis hljóðfæri sem skólarnir geta unnið áfram með. Á vorönn verður boðið upp á danskennslu í tengslum við undirbúning fyrir listadagana. Nefndarmenn ræddu um upplýsingastreymi til foreldra um listadagana og hvernig hægt væri að bæta úr því. </DIV>