Beint í efni

5. fundur

04.09.2012
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

5. fundur

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

04.09.2012

Kl. 16:30 - 16:30

Um fundinn

Nefndarmenn

• Áslaug Hulda Jónsdóttir - Formaður
• Birna Ólafsdóttir - Aðalmaður
• Björn Már Ólafsson - Aðalmaður
• Sigurjóna Sverrisdóttir - Aðalmaður
• Kristín B Björgvinsdóttir - Varamaður

Ritari

• Hulda Hauksdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1207085

01

Meet in Reykjavík - kynning á samtökunum

Erindi Ráðstefnuborgarinnar Reykjavík dagsett 6. júlí 2012 var tekið fyrir í bæjarráði 17. júlí og vísað til kynningar í menningar- og safnanefnd.

Áslaug Hulda Jónsdóttir kynnti erindi frá Meet in Reykjavík/Ráðstefnuborginni Reykjavík um markaðsátak í ráðstefnu- og hvataferðum á höfuðborgarsvæðinu.  Markaðssvæðið er enn stærra ef taldar eru með styttri dagleiðir út frá höfuðborgarsvæðinu.

Sigurjóna Sverrisdóttir sagði nánar frá starfi samtakanna og tilurð þeirra. Reykjavíkurborg, Harpa og Icelandair group eru upphafsaðilar verkefnisins og fyrirtækjum, sveitarfélögum og stofnunum er boðið að vera með í markaðssamstarfinu sem verður farið í markvisst á næstu tveimur árum. Greint var frá þeim verðmætum sem fólgin eru í að fjölga ferðamönnum sem sækja ráðstefnur til Íslands.

Málsnúmer 1205390

02

Umsókn um styrk vegna kvikmyndarinnar Falskur fugl

Erindi Þórs Ómars Jónssonar dagsett 14. maí 2012 var tekið fyrir í bæjarráði 22. maí og vísað til umfjöllunar menningar- og safnanefndar.

Menningar- og safnanefnd getur ekki orðið við þessu erindi.

Málsnúmer 1208254

03

Beiðni um styrk vegna Óperusmiðju Garðabæjar 2012

Bréf Erlu Bjargar Káradóttur f.h. Óperusmiðju Garðabæjar dagsett 15. ágúst 2012 tekið fyrir.

Óperusmiðja Garðabæjar var nú haldin í fjórða sinn í lok ágúst. Óperusmiðjan er námskeið fyrir söngnemendur á framhaldsstigi og unga atvinnusöngvara og endar með óperusýningunum fyrir almenning.  Æfingar og lokasýningar voru haldnar í Kirkjuhvoli, safnaðarheimili Vídalínskirkju. Rætt var um hvernig lokasýningin hefði tekist til þar sem útfærslan var mjög skemmtileg og ungir og efnilegir söngvarar tóku þátt í sýningunni.

Samþykkt að styrkja verkefnið um 100 000 kr.

Málsnúmer 1208526

04

Krókur - umsóknir um vinnuaðstöðu 2012-2013

Vinnuaðstaða fyrir veturinn 2012-2014 var auglýst í Garðapóstinum, á heimasíðu og upplýsingar sendar í t-pósti til ýmissa samtaka listamanna.  Rætt var um afurð verkefna sem hafa verið unnin í Króki og opin hús listamanna.

Samþykkt að úthluta vinnuaðstöðu í Króki til eftirtalinna listamanna

Ingunn Eydal, kt. 090242-2299, myndlist, tímabilið 1. október til 31. desember 2012.  Ingunn ætlar að mála vatnslitaverk í Króki.

Rúna Knútsdóttir Tetzscner, kt. 060367-4429, ritlist og myndlist, hluta vorannar 2012, tímabil verður nánar ákveðið á næsta fundi menningar- og safnanefndar.

Ákveðið var að auglýsa fljótt aftur í öðrum fjölmiðli til að vekja athygli á vinnuaðstöðunni og til að brúa það tímabil sem enn er laust.

Málsnúmer 1203686

05

Tónleikar með Óp-hópnum

Framhald á umræðu frá fyrri fundum um tónleika með Óp-hópnum í Garðabæ. Ekki reyndist unnt að finna dagsetningu fyrir tónleika sem hentaði á vorönn og æskilegt væri að halda tónleikana í október á þessu ári ef heppileg dagsetning finnst í samráði við Óp-hópinn.

Rætt var um kostnað við að halda tónleika með Óp-hópnum, stefnt að því að hafa miðasölu en miðaverð í lágmarki. Rætt var um kynningu á tónleikunum til skólastjóra Tónlistarskóla o.fl. Dagsetningar fyrir tónleikana verða skoðaðar á næstu dögum og nefndin látin vita um framvindu.

Málsnúmer 1208527

06

Tónlistarveisla í skammdeginu 2012

Hin árlega Tónlistarveisla í skammdeginu hefur verið haldin við góðar undirtektir í göngugötunni á Garðatorgi undanfarin ár í nóvember. Síðustu ár hafa samtökin Gróska einnig verið með trönusýningu og í fyrra var opið hús í sýningarsal þeirra á Garðatorgi auk þess sem listamenn voru með opnar vinnustofur.  Rætt var um dagsetningu og stefnt að því að halda tónlistarveisluna fimmtudagskvöldið 8. nóvember nk. með fyrirvara.  Rætt var um hljómsveitir og þær hljómsveitir sem hafa verið undanfarin ár.  Unnið verður úr þeim tillögum um hljómsveitir sem voru ræddar á fundinum og nefndarmenn upplýstir um stöðu mála í t-pósti.

Einnig var rætt um hugsanlegt tónleikahald á næsta ári og hvernig væri hægt að gera tónlistarmönnum úr Garðabæ sérstök skil á slíkum tónleikum/ hátíð.

Málsnúmer 1201151

07

Önnur mál

Suzuki nám í Tónlistarskóla Garðabæjar
Birna Ólafsdóttir lýsti yfir sérstakri ánægju með að nú sé boðið  upp á Suzuki nám í Tónlistarskóla Garðabæjar.  Rætt var um að fá skólastjóra Tónlistarskóla Garðabæjar á fund menningar- og safnanefndar fljótlega til að kynna starfssemi skólans og samstarf á sviði menningarmála.

Tónleikar í Vídalínskirkju
Greint var frá minningartónleikum um Loft Brandsson sem verða haldnir í Vídalínskirkju þriðjudaginn 11. september nk. Fram koma margir þekktir tónlistarmenn þar á meðal Pétur Ben, Ómar og Óskar Guðjónssynir.

Sumarlestur Bókasafns Garðabæjar
Greint var frá sumarlestri bókasafnsins sem nú var haldinn í tíunda sinn. Fjölmenn og skemmtileg uppskeruhátíð fór fram á safninu mánudaginn 20. ágúst sl.

Starf menningar- og safnanefndar
Rætt var stuttlega um starf nefndarinnar almennt og hvert skal stefna á næstu árum.  Rætt var um hvernig hægt er að efla sérstaklega menningarstarf fyrir börn og unglinga í Garðabæ umfram það sem nú þegar er gert.

Hvatningarsjóður ungmenna
Silja Hinriksdóttir sem fékk úthlutaðan styrk úr hvatningarsjóði heldur myndlistarsýningu í Gróskusalnum sem stendur yfir dagana 6.-9. september.  Rætt var um að fá nánari útlistun á því hvernig til hefur tekist með þau verkefni sem fengu úthlutun úr hvatningarsjóðnum.

Næsti fundur
Ákveðið að halda fund næst þriðjudaginn 25. september nk. kl. 16:30.