Beint í efni

Tónlistarveisla í skammdeginu 2012

Málsnúmer 1208527

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

6. fundur

Hin árlega Tónlistarveisla í skammdeginu verður haldin fimmtudaginn 1. nóvember nk. á Garðatorgi.  Hljómsveitin Jet Black Joe spilar á tónleikunum en hljómsveitin heldur upp á 20 ára afmæli sitt um þessar mundir. Greint var frá undirbúningi og rætt var um kynningarmál.  Myndlistarmenn í Grósku ætla að vera með opið hús þetta kvöld í Gróskusalnum á Garðatorgi og myndlistarsýningu sem stendur í nokkra daga á eftir fyrir almenning.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

02

5. fundur

Hin árlega Tónlistarveisla í skammdeginu hefur verið haldin við góðar undirtektir í göngugötunni á Garðatorgi undanfarin ár í nóvember. Síðustu ár hafa samtökin Gróska einnig verið með trönusýningu og í fyrra var opið hús í sýningarsal þeirra á Garðatorgi auk þess sem listamenn voru með opnar vinnustofur.  Rætt var um dagsetningu og stefnt að því að halda tónlistarveisluna fimmtudagskvöldið 8. nóvember nk. með fyrirvara.  Rætt var um hljómsveitir og þær hljómsveitir sem hafa verið undanfarin ár.  Unnið verður úr þeim tillögum um hljómsveitir sem voru ræddar á fundinum og nefndarmenn upplýstir um stöðu mála í t-pósti.

Einnig var rætt um hugsanlegt tónleikahald á næsta ári og hvernig væri hægt að gera tónlistarmönnum úr Garðabæ sérstök skil á slíkum tónleikum/ hátíð.