Meet in Reykjavík - kynning á samtökunum
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
5. fundur
Erindi Ráðstefnuborgarinnar Reykjavík dagsett 6. júlí 2012 var tekið fyrir í bæjarráði 17. júlí og vísað til kynningar í menningar- og safnanefnd.
<DIV><DIV>Áslaug Hulda Jónsdóttir kynnti erindi frá Meet in Reykjavík/Ráðstefnuborginni Reykjavík um markaðsátak í ráðstefnu- og hvataferðum á höfuðborgarsvæðinu. Markaðssvæðið er enn stærra ef taldar eru með styttri dagleiðir út frá höfuðborgarsvæðinu. </DIV><DIV> </DIV><DIV>Sigurjóna Sverrisdóttir sagði nánar frá starfi samtakanna og tilurð þeirra. Reykjavíkurborg, Harpa og Icelandair group eru upphafsaðilar verkefnisins og fyrirtækjum, sveitarfélögum og stofnunum er boðið að vera með í markaðssamstarfinu sem verður farið í markvisst á næstu tveimur árum. Greint var frá þeim verðmætum sem fólgin eru í að fjölga ferðamönnum sem sækja ráðstefnur til Íslands. </DIV></DIV>