Beint í efni

Þriðjudagsklassík

Málsnúmer 1210093

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

4. fundur

Tvennir tónleikar hafa verið haldnir í tónleikaröðinni Þriðjudagsklassík á vorönn í sal Tónlistarskóla Garðabæjar. Síðari tónleikarnir fóru fram þriðjudaginn 7. maí þar og voru ágætlega sóttir. Næstu tónleikar í tónleikaröðinni verða haldnir þriðjudaginn 4. júní þegar Ingibjörg Guðjónsdóttir sópransöngkona og listrænn stjórnandi stígur á svið.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

02

3. fundur

Fyrstu tónleikarnir í tónleikaröðinni er nefnist Þriðjudagsklassík í Garðabæ voru haldnir þriðjudaginn 2. apríl í sal Tónlistarskóla Garðabæjar. Tónleikarnir voru ágætlega sóttir og mæltust vel fyrir. Tvennir tónleikar í viðbót eru fyrirhugaðir á vorönn. Næstu tónleikar verða haldnir þriðjudaginn 7. maí en þá stígur á svið Sigurgeir Agnarsson sellóleikari ásamt Nínu Margréti Grímsdóttur á píanó.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

03

1. fundur

Farið var yfir stöðu mála varðandi klassíska tónleikaröð á vorönn þar sem Ingibjörg Guðjónsdóttir söngkona er listrænn stjórnandi. Stefnt er að þrennum tónleikum á vorönn í sal Tónlistarskóla Garðabæjar, þriðjudaginn 2. apríl, þriðjudaginn 7. maí og þriðjudaginn 4. júní.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

04

6. fundur

Áslaug Hulda Jónsdóttir formaður sagði frá fundi með Ingibjörgu Guðjónsdóttur söngkonu og kórstjóra þar sem farið var yfir hugmynd Ingibjargar um klassíska tónleikaröð í sal Tónlistarskóla Garðabæjar á vorönn. Farið var yfir meðfylgjandi gögn um hugsanlega tónleikaröð. Rætt var um hugmyndina og fjölda tónleika og nefndin var jákvæð gagnvart því að fara af stað með verkefnið.
Einnig var rætt um kostnað og möguleika á að fá styrktaraðila fyrir þetta verkefni. Rætt verður nánar við Ingibjörgu Guðjónsdóttur um framkvæmd þessa verkefnis í samræmi við umræður á fundinum.