1. fundur
1. fundur
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
í miðrými 3. hæð á bæjarskrifstofum Garðabæjar við Garðatorg
15.01.2013
Kl. 16:30 - 16:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Steinunn Vala Sigfúsdóttir - aðalmaður
- Birna Ólafsdóttir - aðalmaður
- Sigurjóna Sverrisdóttir - aðalmaður
- Kristín Fjóla Bergþórsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingafulltrúi
Ritari
- Hulda Hauksdóttir
Formaður bauð áheyrnarfulltrúa Álftaness Kristínu Fjólu Bergþórsdóttur velkomna á fyrsta fund menningar- og safnanefndar á þessu ári.
Dagskrá
Málsnúmer 1301120
01
Sameining Garðabæjar og Álftaness - menningarmál

Sameining Garðabæjar og Álftaness tók gildi um áramótin og Kristín Fjóla Bergþórsdóttir hefur verið skipuð áheyrnarfulltrúi fyrir menningar- og safnanefnd Garðabæjar. Kristín Fjóla sagði frá ýmsum félögum sem hafa verið starfandi á Álftanesi og einnig var fyrir nokkrum árum síðan útnefndur bæjarlistamaður Álftaness í nokkur ár. Áslaug Hulda Jónsdóttir kynnti hugmynd um að bjóða upp á stutta sögu/menningarferð í rútu um Álftanesið fyrir eldri borgara í Garðabæ. Búið er að hafa samband við Jónshús og félag eldri borgara sem tóku vel í slíka hugmynd. Nefndarmenn tóku vel í að útfæra þetta nánar og athugað verður hvort hægt sé að bjóða upp á slíka ferð þriðjudaginn 19. mars í samstarfi við félag eldri borgara. Einnig væri hægt að skoða hvort hægt væri að bjóða upp á slíkar ferðir á öðrum tíma fyrir fleiri bæjarbúa.

Einnig var rætt um hugmyndir sem hafa komið fram um ný skilti til að merkja bæinn, listaverk, skúlptúra o.fl. Stefnt er að því að halda næsta fund menningar- og safnanefndar í Haukshúsi á Álftanesi og fara þá nánar yfir ýmis menningarmál sem tengjast Álftanesi.

Málsnúmer 1301541
02
Tónleikar með OMAM

Fimmtudaginn 10. janúar sl. var skrifað undir samning við hljómsveitina Of Monsters and Men um leigu á æfingahúsnæði í Garðabæ. Rætt hefur verið um að skoða þann möguleika að hljómsveitin haldi útitónleika í Garðabæ í lok sumars / byrjun hausts. Á næstunni verður farið í vinnu við að skoða nánar útfærslu og möguleika á slíkum tónleikum.

Málsnúmer 1210391
03
25 ára afmæli Kvennahlaups 2014
Erindi Kvennahlaupsnefndar Garðabæjar var tekið fyrir í bæjarráði Garðabæjar 30. október og vísað til kynningar í menningar- og safnanefnd.

Greint var frá sögu málsins og rætt um ýmsar hugmyndir þessu tengdu.

Málsnúmer 1210093
04
Hugmynd um tónleikaröð í Garðabæ

Farið var yfir stöðu mála varðandi klassíska tónleikaröð á vorönn þar sem Ingibjörg Guðjónsdóttir söngkona er listrænn stjórnandi. Stefnt er að þrennum tónleikum á vorönn í sal Tónlistarskóla Garðabæjar, þriðjudaginn 2. apríl, þriðjudaginn 7. maí og þriðjudaginn 4. júní.

Málsnúmer 1210134
05
Safnanótt 2013

Söfnin í Garðabæ taka þátt í Safnanótt föstudaginn 8. febrúar. Farið var yfir drög að dagskrá þeirra. Ný sýning opnar í Hönnunarsafninu þetta kvöld og í Bókasafni Garðabæjar, verður boðið upp á fyrirlestur og tónlist bæði á Garðatorgi og í útibúinu á Álftanesi. Dagskráin verður kynnt sérstaklega í Garðapóstinum og á heimasíðu Garðabæjar auk þess sem hún er með í allri dagskrá Safnanætur sem er kynnt á vegum Höfuðborgarstofu.
Umræður voru um önnur söfn svo sem söfn einstaklinga og hvort tilefni væri til þess að athuga við annað tækifæri möguleika á því að sýna slík söfn með því að hafa opið hús hjá einstaklingum og/eða listamönnum.

Málsnúmer 1210177
06
Verkefni á vorönn 2012 - ýmislegt

Gert er ráð fyrir að halda Jazzhátíð Garðabæjar í lok apríl eða í kringum Sumardaginn fyrsta. Sigurður Flosason tónlistarmaður verður áfram listrænn stjórnandi og er farinn að huga að dagskrá. Búið er að taka frá ýmsa sali en skoðað verður nánar hvort hægt verði að vera með tónleika/atriði víðar en í fyrra, s.s. í Haukshúsi eða annars staðar.
Áslaug Hulda Jónsdóttir formaður og Hulda Hauksdóttir upplýsingafulltrúi áttu fund nýverið með Þórunni E. Clausen leikkonu og núverandi bæjarlistamanni. Rædd var hugmynd um að sýna Ferðasögu Guðríðar fyrir nemendur og almenning á vorönn. Nefndarmenn tóku vel í þessa hugmynd sem verður útfærð nánar og kynnt skólum.

Einnig var rætt um viðburðadagatal fyrir menningu í Garðabæ og upplýsingafulltrúi mun skoða það nánar.

Málsnúmer 1211338
07
Skýrsla fornleifarannsókna á Hofsstöðum
Bæjarráð fjallaði um bréf umhverfisnefndar um skýrslu fornleifarannsókna á Hofsstöðum á fundi sínum 27. nóvember og vísaði því til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar og til umhverfisnefndar og menningar- og safnanefndar.

Greinargerð Ragnheiðar Traustadóttur fornleifafræðings lögð fram og rædd.

Málsnúmer 1211421
08
Umsókn um styrk vegna tónleikahalds í Vídalínskirkju
Bréf Þorkels Mána Péturssonar og Jóns Bjarna Péturssonar f.h. Atkid, dagsett 24. nóvember 2012, vegna styrk vegna tónleika með Diktu og Ómari Guðjónssyni o.fl. tekið fyrir.

Menningar- og safnanefnd samþykkir að veita Atkid styrk að upphæð 90 000 kr vegna tónleikahalds í Vídalínskirkju 13. desember 2012.

Málsnúmer 1210385
09
Styrkbeiðni vegna tónleika í Garðakirkju
Bréf Camerarctica, dags 15. okt 2012, um styrk vegna tónleikahalds í Garðakirkju í desember.

Menningar- og safnanefnd samþykkir að veita Camerarctica styrk að upphæð 90 000 kr vegna tónleikahalds í Garðakirkju í desember 2012.

Málsnúmer 1211396
10
Beiðni um styrk vegna tónleikahalds
Bréf Jónu Hrannar Bolladóttur f.h. gospelkórs Jóns Vídalín, dags. 21. nóvember 2012, um styrk vegna tónleikahalds í nóvember. Bréfið var tekið fyrir í bæjarráði og vísað til menningar- og safnanefndar.

Menningar- og safnanefnd styrkti gospelkórinn í maí vegna útgáfuverkefnis og einnig keypti Garðabær eintök af nýútkomnum geisladisk kórsins. Menningar- og safnanefnd getur ekki orðið við erindi kórsins um styrk vegna tónleikahalds að þessu sinni.

Málsnúmer 1210361
11
Beiðni um styrk vegna uppsetningar á söngleik FG vorönn 2013
Erindi Leikfélagsins Verðanda var tekið fyrir í bæjarráði þann 30. október og vísað til menningar- og safnanefndar.

Þórunn Clausen leikstýrir söngleik Leikfélagsins Verðanda sem verður settur upp í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ í febrúar/mars.

Menningar- og safnanefnd samþykkir að styrkja söngleikinn með sama hætti og undanfarin ár gegn því að nemendum í 10. bekk verði boðið á sýninguna. Skoðuð verður hækkun á framlagi með tilliti til fjölgunar nemenda í 10. bekk.