Sameining Garðabæjar og Álftaness - menningarmál
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
1. fundur

Sameining Garðabæjar og Álftaness tók gildi um áramótin og Kristín Fjóla Bergþórsdóttir hefur verið skipuð áheyrnarfulltrúi fyrir menningar- og safnanefnd Garðabæjar. Kristín Fjóla sagði frá ýmsum félögum sem hafa verið starfandi á Álftanesi og einnig var fyrir nokkrum árum síðan útnefndur bæjarlistamaður Álftaness í nokkur ár. Áslaug Hulda Jónsdóttir kynnti hugmynd um að bjóða upp á stutta sögu/menningarferð í rútu um Álftanesið fyrir eldri borgara í Garðabæ. Búið er að hafa samband við Jónshús og félag eldri borgara sem tóku vel í slíka hugmynd. Nefndarmenn tóku vel í að útfæra þetta nánar og athugað verður hvort hægt sé að bjóða upp á slíka ferð þriðjudaginn 19. mars í samstarfi við félag eldri borgara. Einnig væri hægt að skoða hvort hægt væri að bjóða upp á slíkar ferðir á öðrum tíma fyrir fleiri bæjarbúa.

Einnig var rætt um hugmyndir sem hafa komið fram um ný skilti til að merkja bæinn, listaverk, skúlptúra o.fl. Stefnt er að því að halda næsta fund menningar- og safnanefndar í Haukshúsi á Álftanesi og fara þá nánar yfir ýmis menningarmál sem tengjast Álftanesi.