Beint í efni

Safnanótt 2013

Málsnúmer 1210134

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

1. fundur

Söfnin í Garðabæ taka þátt í Safnanótt föstudaginn 8. febrúar.  Farið var yfir drög að dagskrá þeirra.  Ný sýning opnar í Hönnunarsafninu þetta kvöld og í Bókasafni Garðabæjar, verður boðið upp á fyrirlestur og tónlist bæði á Garðatorgi og í útibúinu á Álftanesi.  Dagskráin verður kynnt sérstaklega í Garðapóstinum og á heimasíðu Garðabæjar auk þess sem hún er með í allri dagskrá Safnanætur sem er kynnt á vegum Höfuðborgarstofu.
Umræður voru um önnur söfn svo sem söfn einstaklinga og hvort tilefni væri til þess að athuga við annað tækifæri möguleika á því að sýna slík söfn með því að hafa opið hús hjá einstaklingum og/eða listamönnum.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

02

6. fundur

Safnanótt verður haldin næst föstudaginn 8. febrúar með þátttöku safna á öllu höfuðborgarsvæðinu.  Garðabær tók þátt í Safnanótt í byrjun þessa árs með vel heppnaðri dagskrá í Bókasafni Garðabæjar, Hönnunarsafninu og í Króki á Garðaholti. Safnanótt er hluti af Vetrarhátíð sem Höfuðborgarstofa hefur umsjón með og nýverið var samþykkt að hafa þemað Magnað myrkur sem fasta yfirskrift hátíðarinnar. Söfnin í Garðabæ hafa haft með sér samráð um dagskrá á þessu kvöldi.

Rætt var um hugmyndir að dagskrá í Garðabæ þetta kvöld og mikilvægi þess að huga að því að bjóða upp á fjölskylduvæna dagskrá. Samstarf við leiklistardeild FG tókst vel til á síðustu Safnanótt og gott væri ef hægt væri að halda því áfram með einhverjum hætti næst. Einnig var rætt nokkuð ítarlega um menningu, hönnun og listir fyrir börn og þá sérstaklega hönnun leikfanga og hugmyndir því tengdu, s.s. sýningar, fyrirlestra og fleira. Skoðað verður nánar hvort hægt sé að tengja þessar hugmyndir við Safnanótt næst eða á öðrum vettvangi.