Beint í efni

2. fundur

12.02.2013
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

2. fundur

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

í Haukshúsi

12.02.2013

Kl. 16:30 - 16:30

Um fundinn

Nefndarmenn

• Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
• Steinunn Vala Sigfúsdóttir - aðalmaður
• Birna Ólafsdóttir - aðalmaður
• Sigurjóna Sverrisdóttir - aðalmaður
• Kristín B Björgvinsdóttir - varamaður
• Kristín Fjóla Bergþórsdóttir - áheyrnarfulltrúi
• Hulda Hauksdóttir - upplýsingafulltrúi

Ritari

• Hulda Hauksdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1210177

01

Verkefnin framundan

Umræður um verkefni á sviði menningarmála á árinu 2013. Áframhald umræðu frá síðasta fundi.

Farið var yfir ýmsa viðburði og venjur á sviði menningarmála á Álftanesi.  Kristín Fjóla Bergþórsdóttir lagði fram stutt yfirlit og fór yfir helstu viðburði sem hafa verið á vegum sveitarfélagsins og einnig á vegum félaga yfir árið. Umræður voru um brennur og framkvæmd þeirra.

Lagt var fram vinnublað með yfirliti um helstu menningarverkefni og viðburði framundan á þessu ári og umræður voru um verkefnin.

Meðal atriða sem farið var yfir var endurnýjun á samstarfssamningi við Kvennakór Garðabæjar og rætt var um starfssemi kórsins og aðra kórastarfssemi í bænum.

Umræður voru um val á bæjarlistamanni og stefnt að því að auglýsa eftir ábendingum um bæjarlistamann í mars.

Í mars er stefnt að Söguferð um Álftanesið fyrir eldri borgara og í skoðun er útfærsla á leiksýningu með bæjarlistamanni Garðabæjar fyrir skólahópa og almenning á vorönn (mars/apríl).

Fyrstu tónleikar klassískrar tónleikaraðar þar sem Ingibjörg Guðjónsdóttir er listrænn stjórnandi verða þriðjudaginn 2. apríl.

Jazzhátíð Garðabæjar sem verður haldin í lok apríl er í undirbúningi og drög að dagskrá liggja fljótlega fyrir.

Stefnt að því að halda uppskeruhátíð menningar- og lista í lok maí með svipuðum hætti og í fyrra.

Rætt var um samstarfssamning við Grósku og Jónsmessugleði og formaður og upplýsingafulltrúi munu kalla eftir fundi með fulltrúum stjórnar Grósku til að fara yfir undirbúning að Jónsmessugleði.

Rætt var um Hvatningarsjóð fyrir unga listamenn og endurskoðun á reglum sjóðsins og einnig var rætt um hvort tengja ætti það að einhverju leyti við Skapandi sumarstarf ungmenna.

Einnig var rætt um styrkúthlutanir menningar- og safnanefndar og að stefnt skuli að því að auglýsa eftir umsóknum um samstarf og/eða styrki amk tvisvar á ári á vorönn (miðjan mars) og í byrjun haustannar.

Skoðað verður á næstunni hvernig best er að hafa útfærslu á útitónleikum með hljómsveitinni Of Monsters and Men í byrjun hausts.

Stefnt verður að því að halda opinn fund menningar- og safnanefndar um menningarmál í haust.

Listadagar barna og ungmenna verða haldnir næst vorið 2014 og undirbúningur fer af stað á þessu ári.  Rætt var um hvort hægt væri að hafa einhverja viðburði og/eða smiðjur fyrir fjölskyldur á því ári sem listadagar eru ekki haldnir.