5. fundur
5. fundur
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
21.08.2013
Kl. 16:30 - 16:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Steinunn Vala Sigfúsdóttir - aðalmaður
- Birna Ólafsdóttir - aðalmaður
- Sigurjóna Sverrisdóttir - aðalmaður
- Kristín B Björgvinsdóttir - varamaður
- Kristín Fjóla Bergþórsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingafulltrúi
Ritari
- Hulda Hauksdóttir
Dagskrá
01
Tónleikar með Of Monsters and Men (OMAM)
Kári Sturluson tónleikahaldari var gestur fundarins undir 1. lið.
Kári Sturluson greindi nefndarmönnum frá upphafi verkefnisins og hans aðkomu að tónleikunum. Fyrirhugaðir tónleikar verða haldnir laugardaginn 31. ágúst nk. á túninu við Vífilsstaði. Farið var yfir tímasetta dagskrá og umfang og skipulag á svæðinu. Félög í Garðabæ verða með sölu á staðnum og Hjálparsveit skáta í Garðabæ aðstoðar við umferðarstjórnun og gæslu. Rætt var um strætóferðir og gönguleiðir á staðinn. Einnig var rætt um kynningu á viðburðinum, aðkomuleiðir og fleiri fjölmiðlamál. Farið var yfir veðurspá og möguleika ef veður yrði ekki gott. Kára var þakkað fyrir komuna á fundinn.
02
Menningarverkefni 2013 - ýmislegt
<UL><LI><EM>Skapandi sumarstarf</EM>
Rætt var um starfsemi skapandi sumarstarfs og uppskeruhátíð þeirra sem var mjög flott. Skýrsla um starfið verður unnin fyrir fræðslu- og menningarsvið til að fara yfir það sem var vel gert og hvað má betur fara.</LI><LI><EM>Tónlistarverkefni í haust</EM>
Umræðum um verkefni haustsins verður haldið áfram á næsta fundi menningar- og safnanefndar um miðjan september.</LI><LI><EM>Krókur
</EM>Krókur hefur verið opinn almenningi á sunnudögum í sumar og auk þess hefur listakona sem var með vinnuaðstöðu í Króki sýnt bæinn á öðrum tímum. Auglýst verður eftir umsóknum um vinnuaðstöðu í Króki fyrir næsta vetur og umsóknir teknar fyrir á næsta fundi. </LI></UL>
03
Kynningar og önnur mál
Rætt var um opnunartíma útibús Bókasafnsins á Álftanesi. Kristín Fjóla Bergþórsdóttir áheyrnarfulltrúi Álftaness benti á að mikilvægi þess að hafa safnið áfram opið á miðvikudagskvöldum þannig að það gæti verið áfram afdrep fyrir almenna gesti sem og leshóp sem hefur verið starfandi á miðvikudagskvöldum.