Beint í efni

Þriðjudagsklassík

Málsnúmer 1309206

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

3. fundur

Tónleikaröðin Þriðjudagsklassík er nú haldin annað vorið í röð og þriðjudaginn 6. maí sl. voru tónleikar með Peter Tompkins óbóleikara og Valgerði Andrésdóttur píanóleikara í sal Tónlistarskólans. Rætt var um hvernig gekk. Næstu og síðustu tónleikar í tónleikaröðinni verða haldnir þriðjudaginn 3. júní nk. þegar Ágúst Ólafsson söngvari og Eva Þyrí Hilmarsdóttir píanóleikari stíga á svið.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

02

2. fundur

Fyrstu tónleikarnir í tónleikaröðinni Þriðjudagsklassík í Garðabæ fóru fram þriðjudaginn 1. apríl sl. Þá komu fram Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari, Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari og Domenico Codispoti píanóleikari. Tónleikarnir tókust afar vel og það var ágætis aðsókn. Næstu tónleikar verða haldnir þriðjudagskvöldið 6. maí nk. í sal Tónlistarskólans og þá stíga á svið Peter Tompkins óbóleikari og Valgerður Andrésdóttir píanóleikari. Síðustu tónleikarnir í tónleikaröðinni verða haldnir þriðjudaginn 3. júní en þá koma fram Ágúst Ólafsson baritónsöngvari og Eva Þyrí Hilmarsdóttir píanóleikari.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

03

1. fundur

Ingibjörg Guðjónsdóttir tónlistarmaður hefur unnið að undirbúningi þrennra klassískra tónleika sem verða haldnir nú í annað sinn að vori undir yfirskriftinni Þriðjudagsklassík í samvinnu við menningar- og safnanefnd. Tónleikarnir verða haldnir fyrsta þriðjudag í apríl, maí og júní í sal Tónlistarskóla Garðabæjar. Um leið og allar upplýsingar liggja fyrir um flytjendur verða þær sendar til nefndarmanna.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

04

7. fundur

Farið var yfir drög að dagskrá fyrir þrenna tónleika í tónleikaröðinni Þriðjudagsklassík sem Ingibjörg Guðjónsdóttir heldur utanum á vegum menningar- og safnanefndar í sal Tónlistarskólans á vorönn. Rætt var um tónleikana og dagsetningar.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

05

6. fundur

<DIV>Formaður greindi frá fundi með Ingibjörgu Guðjónsdóttur núverandi bæjarlistamanni og listrænum stjórnanda tónleikaraðarinnar Þriðjudagsklassík sem fór fram á vormánuðum.  Tónleikarnir í vor voru haldnir við góðar undirtektir í sal Tónlistarskóla Garðabæjar.  Lagt var fram minnisblað frá Ingibjörgu Guðjónsdóttur um framhald á tónleikaröðinni og mismunandi útfærslur í tengslum við það.  Samþykkt var að halda áfram samstarfi við Ingibjörgu um tónleikaröðina og miðað við að hafa þrenna tónleika á vorönn 2014.  </DIV>