7. fundur
7. fundur
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
04.12.2013
Kl. 16:30 - 16:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Steinunn Vala Sigfúsdóttir - aðalmaður
- Björn Már Ólafsson - aðalmaður
- Sigurjóna Sverrisdóttir - aðalmaður
- Kristín B Björgvinsdóttir - varamaður
- Kristín Fjóla Bergþórsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingafulltrúi
Ritari
- Hulda Hauksdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1311485
01
Beiðni um styrk vegna uppsetningu óperu
Bréf Gunnsteins Ólafssonar, móttekið 15.11.13, um styrk til að setja á svið ævintýraóperuna Baldursbrá í Hörpu tekið fyrir.$line$$line$Menningar- og safnanefnd getur ekki orðið við þessari styrkbeiðni.
Málsnúmer 1311472
02
Styrkbeiðni vegna tónleika í Garðakirkju desember 2013
Bréf Kammerhópsins Camerarctica, móttekið 14.11.13, um styrk vegna jólatónleika í Garðakirkju.$line$$line$Menningar- og safnanefnd samþykkir að veita Camerarctica styrk að upphæð 90 000 kr fyrir tónleikahald í Garðakirkju 21. desember nk.
Málsnúmer 1309373
03
Nordisk ljus 2014 - samstarf við Garðabæ
Upplýsingafulltrúi greindi frá verkefninu Nordisk ljus sem verður haldið í júlí á næsta ári. Bæjarráð fjallaði um bréf Vilborgar Einarsdóttur og Hlínar Jóhannesdóttur varðandi norrænu ungmennalistahátíðina Nordisk ljus í september sl. og tók jákvætt í erindið hvað varðar útvegun á gistirými en vísaði erindinu að öðru leyti til menningar- og safnanefndar. Nordisk ljus er menningarhátíð fyrir ungmenni á aldrinum 14-17 ára með þátttöku ungmenna frá Íslandi, Grænlandi, Færeyjum, Álandseyjum, Svíþjóð, Noregi, Danmörku og Finnlandi. Um er að ræða fimm vinnuhópa og hver hópur ferðast til þriggja landa og tekur þátt í vinnustofum og allir hóparnir koma svo saman í Austur Finlandi og vinna þar að lokasýningu hátíðarinnar í byrjun ágúst 2014. Tónlistarhópurinn gistir og tekur þátt í vinnustofu sem verður haldin í Garðabæ á vegum verkefnisins. Ætlunin er að bjóða allt að 15 ungmennum úr Garðabæ að taka þátt í vinnustofunni sem haldin verður í bænum auk þeirra ungmenna sem eru í tónlistarhópnum sem ferðast á milli. Nánar verður rætt við forsvarsmenn verkefnisins á næstunni um útfærslu á verkefninu í Garðabæ og menningar- og safnanefnd upplýst um málið.
Málsnúmer 1312009
04
Safnanótt 2014
Greint var frá undirbúningi við Safnanótt 2014 sem verður haldin föstudagskvöldið 7. febrúar á næsta ári. Safnanótt er hluti af Vetrarhátíð í Reykjavík en flest söfn á höfuðborgarsvæðinu hafa tekið þátt í Safnanótt undanfarin ár. Bókasafn Garðabæjar og Hönnunarsafn Íslands taka þátt eins og undanfarin ár en auk þess verður einnig opið hús í Króki á Garðaholti. Drög að dagskrá í Garðabæ voru kynnt. Einnig er í skoðun hvort sundlaugar á höfuðborgarsvæðinu vilja taka þátt í sameiginlegri Sundlauganótt sem hefur verið hluti af Vetrarhátíð og rætt hefur verið við íþróttafulltrúa Garðabæjar sem tók jákvætt í málið.
Málsnúmer 1309206
05
Þriðjudagsklassík
Farið var yfir drög að dagskrá fyrir þrenna tónleika í tónleikaröðinni Þriðjudagsklassík sem Ingibjörg Guðjónsdóttir heldur utanum á vegum menningar- og safnanefndar í sal Tónlistarskólans á vorönn. Rætt var um tónleikana og dagsetningar.
Málsnúmer 1312008
06
Menningarverkefni 2014
Farið var yfir verkefni sem liggja fyrir vorönn, eins og þriðjudagsklassík, Jazzhátíð Garðabæjar, Jónsmessugleði Grósku, uppskeruhátíð menningarmála. Á næsta ári verða Listadagar barna og ungmenna haldnir í sjötta sinn en þeir hafa undanfarið verið á tveggja ára fresti. Umræða var um hvort ætti að hafa listadagana árlega og ef svo er þá þyrfti að skoða það fljótlega í byrjun árs í samráði við aðila sem koma að listadögunum. Þema listadaganna á næsta ári verður Sagnalist. $line$Rætt var um ýmis önnur mál eins og áframhaldandi tónleikahald á Vífilsstaðatúni, sýningu á verkum hönnuða úr Garðabæ, Hvatningarsjóð ungra listamanna og almennar styrkveitingar nefndarinnar. $line$$line$Umræðu um verkefni næsta árs verður haldið áfram á fyrsta fundi nefndarinnar í janúar. Í byrjun febrúar er stefnt að því að bjóða ýmsum félagasamtökum á fund menningar- og safnanefndar. $line$$line$$line$$line$