Menningarverkefni 2014
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
1. fundur
Umræðu haldið áfram frá síðasta fundi.
Rætt var um viðburði framundan á vorönn.$line$Bókasafn Garðabæjar hefur undanfarin vor staðið fyrir sögugöngum í maí mánuði í samstarfi við menningar- og safnanefnd. Stefnt er að sögugöngu bókasafnsins laugardaginn 3. maí nk. í samstarfi við Tónlistarskóla Garðabæjar. Sagt var frá hugmynd umhverfisnefndar um fræðslugöngu í maí. $line$$line$Listadagar barna og ungmenna verða haldnir síðustu vikuna í apríl fram í byrjun maí. Eins og á síðasta fundi var rætt um hvort það ætti að hafa listadagana að árlegum viðburði. Einnig var rætt um möguleika á því að hafa í dagskránni einhvers konar vinnusmiðju þar sem fjölskyldur gætu komið saman og búið til eitthvað í sameiningu.$line$$line$Einnig var umræða um skoðun á frekara tónleikahaldi við Vífilsstaði. Þeirri umræðu verður framhaldið á næsta fundi og farið nánar yfir ýmsar útfærslur því tengdu.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
7. fundur
Farið var yfir verkefni sem liggja fyrir vorönn, eins og þriðjudagsklassík, Jazzhátíð Garðabæjar, Jónsmessugleði Grósku, uppskeruhátíð menningarmála. Á næsta ári verða Listadagar barna og ungmenna haldnir í sjötta sinn en þeir hafa undanfarið verið á tveggja ára fresti. Umræða var um hvort ætti að hafa listadagana árlega og ef svo er þá þyrfti að skoða það fljótlega í byrjun árs í samráði við aðila sem koma að listadögunum. Þema listadaganna á næsta ári verður Sagnalist. $line$Rætt var um ýmis önnur mál eins og áframhaldandi tónleikahald á Vífilsstaðatúni, sýningu á verkum hönnuða úr Garðabæ, Hvatningarsjóð ungra listamanna og almennar styrkveitingar nefndarinnar. $line$$line$Umræðu um verkefni næsta árs verður haldið áfram á fyrsta fundi nefndarinnar í janúar. Í byrjun febrúar er stefnt að því að bjóða ýmsum félagasamtökum á fund menningar- og safnanefndar. $line$$line$$line$$line$