Beint í efni

1. fundur

26.02.2014
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

1. fundur

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

í Garðabæ

26.02.2014

Kl. 16:30 - 16:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Steinunn Vala Sigfúsdóttir - aðalmaður
  • Birna Ólafsdóttir - aðalmaður
  • Kristín B Björgvinsdóttir - varamaður
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingafulltrúi

Ritari

  • Hulda Hauksdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1402013

01

Jazzhátíð Garðabæjar 2014

Sigurður Flosason tónlistarmaður og listrænn stjórnandi Jazzhátíðar Garðabæjar var gestur fundarins undir þessum dagskrárlið.$line$Jazzhátíð Garðabæjar verður nú haldin í níunda sinn í vor, dagana 24.-27. apríl. Rætt var um hvernig dagskrá hefur verið á jazzhátíðinni og Sigurður greindi frá ýmsum hugmyndum sem eru í vinnslu varðandi dagskrána í ár. Áfram er áhugi fyrir því að hafa tónleika fyrir eldri borgara í Jónshúsi í samstarfi við Félag eldri borgara. $line$Það hefur verið jákvætt að tengja ungmenni við hátíðina með því að bjóða nemendum úr Tónlistarskóla Garðabæjar og öðrum ungum listamönnum að koma fram sem upphitunaratriði eða að hafa sérstaka ungmennatónleika. Umræða var um jazzhátíðina almennt, umgjörð og atriði. Sigurði var þakkað fyrir komuna á fundinn og jafnframt lýstu nefndarmenn yfir ánægju sína með að hafa hann áfram í hlutverki listræns stjórnanda hátíðarinnar.

Málsnúmer 1312009

02

Safnanótt 2014

Söfn í Garðabæ tóku þátt í Safnanótt föstudaginn 7. febrúar sl. Safnanótt er hluti af Vetrarhátíð í Reykjavík og þetta var í fimmta sinn sem söfn í Garðabæ voru með. Boðið var upp á dagskrá í Bókasafni Garðabæjar á Garðatorgi og í útibúi safnsins í Álftanesskóla, í Hönnunarsafni Íslands og í Króki á Garðaholti. Rætt var um hvernig til tókst og farið yfir hvernig dagskráin var uppsett, góð aðsókn var á flesta staði þetta kvöld. $line$$line$Sundlauganótt var haldin um viku síðar eða laugardagskvöldið 15. febrúar og boðið var uppá dagskrá í Álftaneslaug af því tilefni. Sundlauganótt er einnig hluti af Vetrarhátíð og þetta var í fyrsta sinn sem sundlaugar utan Reykjavíkur voru þátttakendur. Góð aðsókn var í Álftaneslaugina og sundlaugargestir lýstu yfir mikilli ánægju með framtakið. Rætt var um að skoða hvort hægt væri að bjóða upp á menningartengda dagskrá í sundlauginni t.d. að sumri í kringum Jónsmessu.

Málsnúmer 1309206

03

Þriðjudagsklassík

Ingibjörg Guðjónsdóttir tónlistarmaður hefur unnið að undirbúningi þrennra klassískra tónleika sem verða haldnir nú í annað sinn að vori undir yfirskriftinni Þriðjudagsklassík í samvinnu við menningar- og safnanefnd. Tónleikarnir verða haldnir fyrsta þriðjudag í apríl, maí og júní í sal Tónlistarskóla Garðabæjar. Um leið og allar upplýsingar liggja fyrir um flytjendur verða þær sendar til nefndarmanna.

Málsnúmer 1402015

04

Uppskeruhátíð menningar- og lista 2014

Uppskeruhátíð menningar- og lista hefur undanfarin ár verið haldin í lok maí í samkomuhúsinu á Garðaholti. Ákveðið var að halda hátíðina í ár fimmtudaginn 22. maí á Garðaholti. Rætt var um hvernig dagskráin hefur verið undanfarin ár, tilkynnt hefur verið um val á bæjarlistamanni Garðabæjar o.fl. Auglýst verður eftir ábendingum um bæjarlistamann um miðjan mars. Nánar verður rætt um dagskrá og framkvæmd uppskeruhátíðar á næsta fundi.

Málsnúmer 1402012

05

Hvatningarsjóður ungra listamanna 2014

Farið var yfir reglur um hvatningarsjóð ungra listamanna. Rætt var um hvernig úthlutað hefur verið úr sjóðnum. Stefnt skal að því að auglýsa eftir umsóknum úr hvatningarsjóðnum um miðjan mars.

Málsnúmer 1312008

06

Menningarverkefni 2014

Umræðu haldið áfram frá síðasta fundi.

Rætt var um viðburði framundan á vorönn.$line$Bókasafn Garðabæjar hefur undanfarin vor staðið fyrir sögugöngum í maí mánuði í samstarfi við menningar- og safnanefnd. Stefnt er að sögugöngu bókasafnsins laugardaginn 3. maí nk. í samstarfi við Tónlistarskóla Garðabæjar. Sagt var frá hugmynd umhverfisnefndar um fræðslugöngu í maí. $line$$line$Listadagar barna og ungmenna verða haldnir síðustu vikuna í apríl fram í byrjun maí. Eins og á síðasta fundi var rætt um hvort það ætti að hafa listadagana að árlegum viðburði. Einnig var rætt um möguleika á því að hafa í dagskránni einhvers konar vinnusmiðju þar sem fjölskyldur gætu komið saman og búið til eitthvað í sameiningu.$line$$line$Einnig var umræða um skoðun á frekara tónleikahaldi við Vífilsstaði. Þeirri umræðu verður framhaldið á næsta fundi og farið nánar yfir ýmsar útfærslur því tengdu.

Málsnúmer 1402014

07

Krókur - umsóknir um vinnuaðstöðu 2014

Auglýst var eftir umsóknum um vinnuaðstöðu í Króki um miðjan janúar í fjölmiðlum og á vefsíðu Garðabæjar. Engar umsóknir hafa borist en ákveðið var að kynna vinnuaðstöðuna fyrir listamenn með því að hafa samband við ýmis félög listamanna.

Málsnúmer 1402383

08

Endurskoðun íþrótta og tómstundastefnu

Drög að endurskoðaðri íþrótta- og tómstundastefnu Garðabæjar lögð fram. Engar athugasemdir voru gerðar.

Málsnúmer 1402436

09

Beiðni um styrk vegna tískusýningar nemenda í fata- og textílhönnun í FG vorið 2014

Bréf nemenda í fata- og textílhönnun dags. 28. janúar sl. um styrkbeiðni vegna tískusýningar var tekið fyrir.$line$ $line$Samþykkt var að veita nemendum í fata- og textílhönnun í FG styrk að upphæð 65 000 kr vegna tískusýningar í apríl 2014.

Málsnúmer 1401718

10

Styrkbeiðni - Píanóleikur í 60 ár, Agnes Löve

Á fundi bæjarráðs Garðabæjar 4. febrúar var bréfi sveitarstjóra Rangárþings eystra frá 28. janúar sl. vísað til afgreiðslu menningar- og safnanefndar. $line$$line$Menningar- og safnanefnd getur ekki orðið við þessari styrkbeiðni vegna útgáfu á geisladisk.

Málsnúmer 1301119

11

Kynningar og önnur mál

Áslaug Hulda Jónsdóttir formaður ræddi um mikilvægi þess að í bænum verði fundið æfingarhúsnæði fyrir ungt tónlistarfólk. Málið rætt og nefndarmenn sammála um mikilvægi þess að styðja við ungt tónlistarfólk í bænum með slíkri aðstöðu.