Safnanótt 2014
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
1. fundur
Söfn í Garðabæ tóku þátt í Safnanótt föstudaginn 7. febrúar sl. Safnanótt er hluti af Vetrarhátíð í Reykjavík og þetta var í fimmta sinn sem söfn í Garðabæ voru með. Boðið var upp á dagskrá í Bókasafni Garðabæjar á Garðatorgi og í útibúi safnsins í Álftanesskóla, í Hönnunarsafni Íslands og í Króki á Garðaholti. Rætt var um hvernig til tókst og farið yfir hvernig dagskráin var uppsett, góð aðsókn var á flesta staði þetta kvöld. $line$$line$Sundlauganótt var haldin um viku síðar eða laugardagskvöldið 15. febrúar og boðið var uppá dagskrá í Álftaneslaug af því tilefni. Sundlauganótt er einnig hluti af Vetrarhátíð og þetta var í fyrsta sinn sem sundlaugar utan Reykjavíkur voru þátttakendur. Góð aðsókn var í Álftaneslaugina og sundlaugargestir lýstu yfir mikilli ánægju með framtakið. Rætt var um að skoða hvort hægt væri að bjóða upp á menningartengda dagskrá í sundlauginni t.d. að sumri í kringum Jónsmessu.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
7. fundur
Greint var frá undirbúningi við Safnanótt 2014 sem verður haldin föstudagskvöldið 7. febrúar á næsta ári. Safnanótt er hluti af Vetrarhátíð í Reykjavík en flest söfn á höfuðborgarsvæðinu hafa tekið þátt í Safnanótt undanfarin ár. Bókasafn Garðabæjar og Hönnunarsafn Íslands taka þátt eins og undanfarin ár en auk þess verður einnig opið hús í Króki á Garðaholti. Drög að dagskrá í Garðabæ voru kynnt. Einnig er í skoðun hvort sundlaugar á höfuðborgarsvæðinu vilja taka þátt í sameiginlegri Sundlauganótt sem hefur verið hluti af Vetrarhátíð og rætt hefur verið við íþróttafulltrúa Garðabæjar sem tók jákvætt í málið.