Beint í efni

Nordisk ljus 2014 - samstarf við Garðabæ

Málsnúmer 1309373

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

7. fundur

Upplýsingafulltrúi greindi frá verkefninu Nordisk ljus sem verður haldið í júlí á næsta ári. Bæjarráð fjallaði um bréf Vilborgar Einarsdóttur og Hlínar Jóhannesdóttur varðandi norrænu ungmennalistahátíðina Nordisk ljus í september sl. og tók jákvætt í erindið hvað varðar útvegun á gistirými en vísaði erindinu að öðru leyti til menningar- og safnanefndar. Nordisk ljus er menningarhátíð fyrir ungmenni á aldrinum 14-17 ára með þátttöku ungmenna frá Íslandi, Grænlandi, Færeyjum, Álandseyjum, Svíþjóð, Noregi, Danmörku og Finnlandi. Um er að ræða fimm vinnuhópa og hver hópur ferðast til þriggja landa og tekur þátt í vinnustofum og allir hóparnir koma svo saman í Austur Finlandi og vinna þar að lokasýningu hátíðarinnar í byrjun ágúst 2014. Tónlistarhópurinn gistir og tekur þátt í vinnustofu sem verður haldin í Garðabæ á vegum verkefnisins. Ætlunin er að bjóða allt að 15 ungmennum úr Garðabæ að taka þátt í vinnustofunni sem haldin verður í bænum auk þeirra ungmenna sem eru í tónlistarhópnum sem ferðast á milli. Nánar verður rætt við forsvarsmenn verkefnisins á næstunni um útfærslu á verkefninu í Garðabæ og menningar- og safnanefnd upplýst um málið.

Bæjarráð Garðabæjar

02

37. fundur

<DIV><DIV><P style="TEXT-ALIGN: justify; LINE-HEIGHT: normal; MARGIN: 0cm 0cm 0pt" class=MsoNormal>Bæjarráð tekur jákvætt í erindið hvað varðar útvegun á gistirými en vísar erindinu að öðru leyti til menningar- og safnanefndar.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /><o:p></o:p></P></DIV></DIV>