Beint í efni

Uppskeruhátíð menningar- og lista 2013

Málsnúmer 1304605

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

4. fundur

Menningaruppskeruhátíð verður haldin í annað sinn fimmtudaginn 30. maí nk. í samkomuhúsinu á Garðaholti. Rætt var um dagskrá og hvernig til hefði tekist í fyrra í fyrsta sinn. Félagsmenn í Grósku ætla að setja upp örsýningu á myndlist í hlöðunni við Krók eins og í fyrra. Rætt var um nánari útfærslu dagskrár í ár og unnið verður áfram að því.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

02

3. fundur

Í fyrra var haldin í fyrsta sinn sérstök uppskeruhátíð menningar- og lista þar sem m.a. var tilkynnt um val á bæjarlistamanni, heiðursverðlaun afhent, úthlutað úr hvatningarsjóði ungra listamanna og skrifað undir ýmsa menningarsamninga. Ákveðið er að halda aftur slíka uppskeruhátíð síðdegis fimmtudaginn 30. maí nk í samkomuhúsinu á Garðaholti. Gróska hefur jafnframt boðist til að halda aftur ,,örmyndlistarsýningu" í hlöðunni við Krók við þetta tækifæri. Drög að dagskrá uppskeruhátíðarinnar verða lögð fram á næsta fundi menningar- og safnanefndar. Einnig var rætt um verkefni með fráfarandi bæjarlistamanni Þórunni Clausen sem fyrirhugað er að hafa í síðari hluta maí.