Beint í efni

Jónsmessugleði 2013

Málsnúmer 1304604

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

3. fundur

<DIV><DIV>Formaður greindi frá fundi sem var haldinn nýverið með forsvarsmönnum Grósku, samtaka myndlistarmanna og áhugamanna um myndlist í Garðabæ.  Þar var rætt um ýmis verkefni hjá Grósku á liðnu ári og verkefni framundan eins og árlega Sumarsýningu sem verður opnuð á Garðatorgi að kvöldi til miðvikudaginn 24. apríl.  Einnig var rætt um dagsetningar fyrir Jónsmessugleði í sumar og á næstunni verður fundað með Grósku um undirbúning fyrir Jónsmessugleðina.  Rætt var um umgjörð Jónsmessugleðinnar og dagskráratriði.<BR>Forsvarsmenn Grósku hafa óskað eftir að koma á fund menningar- og safnanefndar og stefnt er að því að bjóða þeim á næsta fund nefndarinnar. </DIV></DIV>