Drög að samstarfssamningi við Grósku.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
19. fundur
Bæjarráð samþykkir samstarfssamning við Grósku þar sem fram kemur að bærinn styrkir starfsemi samtakanna á árinu 2014 og 2015 að fjárhæð kr. 1.500.000, hvort ár.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
3. fundur
Farið var yfir drög að samstarfssamningi við Grósku sem verður lagður fyrir bæjarráð Garðabæjar. Stefnt að undirritun samstarfssamnings á menningaruppskeruhátíðinni 22. maí nk.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
03
2. fundur
Formaður greindi frá fundi með nýjum formanni Grósku og meðstjórnanda þar sem farið var yfir það sem framundan er hjá Grósku eins og vorsýningu, Jónsmessugleði o.fl. Stefnt er að útbúa nýjan samstarfssamning við Grósku um áframhaldandi samstarfs. Samningurinn verður lagður fram á næsta fundi og stefnt að undirritun á árlegri menningaruppskeruhátíð síðari hluta maí mánaðar.