Samstarf við Dægradvöl, áhugamannafélag um menningu og listir.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
19. fundur
Bæjarráð vísar til bæjarstjóra að hefja viðræður við forsvarsmenn félagsins um gerð samstarfssamning
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
2. fundur
Iðunn Thors og Svana Stefánsdóttur mættu á fundinn f.h. stjórnar Dægradvalar.
Iðunn Thors og Svana Stefánsdóttir fóru yfir sögu og starfssemi félagsins Dægradvalar á Álftanesi og samstarf þess við sveitarfélagið Álftanes á sínum tíma. Félagið hefur staðið fyrir ýmsum menningarviðburðum á Álftanesi í gegnum tíðina. Dægradvöl er nú í samstarfi við FONÁ, Fugla- og náttúruverndarfélag Álftaness og Félag áhugafólks um skólahald á Bessastöðum. $line$Rætt var um hugsanleg framtíðaráform Dægradvalar og mögulegt samstarf við bæinn í formi samstarfssamnings. Nefndin tók vel í samstarf og unnið verður að undirbúningi samstarfssamnings.