Beint í efni

Minjagarður Hofsstöðum 10 ára - dagskrá

Málsnúmer 1405186

Ferill máls

Umhverfisnefnd Garðabæjar

01

40. fundur

Lögð fram auglýsing á fræðslugöngu í tilefni 10 ára afmælis minjagarðsins á Hofsstöðum þann 21. maí, dagskráin hefst kl.20:00. Ragnhildur Traustadóttir, fornleifafræðingur verður með leiðsögn í minjagarðinum og við Urriðakot.$line$Dagskráin er samstarfsverkefni umhverfisnefndar og menningar- og safnanefndar.

Umhverfisnefnd fagnar þessu samstarfi.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

02

3. fundur

Umhverfisnefnd hefur árlega verið með fræðslugöngur og að þessu sinni verður fræðsluganga miðvikudaginn 21. maí nk. kl. 20 sem hefst við minjagarðinn á Hofsstöðum undir leiðsögn Ragnheiðar Traustadóttur fornleifafræðings. Gangan verður að þessu sinni í samstarfi við menningar- og safnanefnd. Að lokinni leiðsögn í minjagarðinum verður boðið upp á rútu í Kauptún þaðan sem gengið verður að Urriðakoti og sagt frá fornleifum og sögu staðarins.