24. fundur
24. fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
24.06.2014
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1406241
01
Bréf Þjóðskrár Íslands varðandi fasteignamat 2015, dags. 10.06.14.
Lagðar fram og kynntar upplýsingar frá Þjóðskrá Íslands um fasteignamat 2015 sem gilda mun við álagningu fasteignagjalda á árinu 2015.$line$$line$Fram kemur að fasteignamat í Garðabæ hækkar um 8,5% og mat á landi um 4,5% milli áranna 2014 og 2015.
Málsnúmer 1406250
02
Bréf eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga varðandi fjármálastjórn sveitarfélaga, dags. 12.06.14.
Lagt fram.
Málsnúmer 1309395
03
Bréf Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga varðandi framlög vegna nýbúafræðslu 2014, dags. 12.06.14.
Í bréfinu kemur fram að framlag Jöfnunarsjóðs til nýbúafræðslu á árinu 2014 nemur kr. 8.520.000 en í fjárhagsáætlun Garðabæjar var gert ráð fyrir framlagi að fjárhæð kr. 9.300.000.
Málsnúmer 1406203
04
Bréf Hróksins varðandi styrk vegna barna- og ungmennastarfs á Grænlandi og Íslandi, dags. 11.06.14.
Bæjarráð telur eigi unnt að verða við erindinu.
Málsnúmer 1406031
05
Afgreiðsla byggingarfulltrúa á umsókn um byggingarleyfi fyrir Garðatorg 2, dags. 20.06.14.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi fyrir 46 íbúða fjölbýlishús við Garðatorg 4.
Málsnúmer 1405454
06
Afgreiðsla byggingarfulltrúa á umsókn um byggingarleyfi fyrir Holtsveg 51, dags. 18.06.14.
Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins.
Málsnúmer 1406075
07
Afgreiðsla byggingarfulltrúa á umsókn um byggingarleyfi fyrir Sunnuflöt 36, dags. 12.06.14.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna stækkunar á anddyri o.fl. við Sunnuflöt 36.
Málsnúmer 1406258
08
Afgreiðsla byggingarfulltrúa á umsókn um byggingarleyfi fyrir Kirkjubrekku 14, dags. 20.06.14.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi samkvæmt reyndarteikningum vegna lokaúttektar fyrir Kirkjubrekku 4.
Málsnúmer 1401315
09
Bréf byggingarfulltrúa varðandi úttekt á geymslurýmum að Ljósakri 2, 4, 6, og 8, dags. 12.06.14.
Lögð fram greinargerð byggingarfulltrúa vegna úttektar á óleyfilegum framkvæmdum við innréttingar í 9 geymslurýmum af 12 í húsunum við Ljósakur 2 - 8. Í greinargerðinni kemur fram að rýmin hafa verið innréttuð sem vistaverur með snyrtiaðstöðu, eldhúskrók og svefnstæði. Þá kemur fram það álit eldvarnareftirlits að brunavarnir í viðkomandi rýmum séu ófullnægjandi en hvorki er brunahólfun né flóttaleiðir í samræmi við öryggisreglur.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til skoðunar bæjarstjóra.
Málsnúmer 1302052
10
Tímabundin framlenging á samningi um ferðaþjonustu fatlaðs fólks.
Á fundi bæjarráðs sem haldinn var 25. júní 2013 var samþykkt að framlengja samning um ferðaþjónustu fatlaðs fólks til 30. júní 2014 meðan verið væri að bíða eftir niðurstöðu sameiginlegs útboðs sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu.$line$$line$Bæjarráð samþykkir, þar sem niðurstaða útboðs liggur ekki enn fyrir, að framlengja samning við núverandi verktaka ferðaþjónustu fatlaðs fólks til 31. desember 2014 og felur bæjarstjóra að ganga frá samningi um málið.
Málsnúmer 1402173
11
Bréf EBÍ varðandi úthlutun úr styrktarsjóði 2014, dags. 10.06.14.
Í bréfinu kemur fram að ekki hafi reynst unnt að veita skóladeild Garðabæjar styrk úr Styrktarsjóði EBÍ til að vinna að verkefni við innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Málsnúmer 1406218
12
Endurskoðun reglna um styrki til starfsmanna í skólum
Bæjarráð samþykkir endurskoðaðar reglur um styrki til starfsmanna í skólum.
Málsnúmer 1406160
13
Samkomulag um talmeinaþjónustu milli ríkis og sveitarfélaga.
Lagt fram samkomulag velferðarráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga um skiptingu ábyrgðar vegna talmeinaþjónustu við börn með framburðarfrávik , málþroskafrávik og stam.
Málsnúmer 1406273
14
Beiðni um niðurfellingu fasteignagjalda af húsinu nr. 18 við Stekkjarflöt.
Bæjarráð hefur ekki heimild samkvæmt lögum til að fella niður rétt álögð fasteignagjöld í tilvikum sem þessum en bendir viðkomandi eigendum á að óska eftir endurmati á fasteignarmati hússins.$line$$line$Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara.
Málsnúmer 1308500
15
Miðskógar 8 - krafa lóðareiganda vegna málsmeðferðar sveitarfélagsins
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að leita samkomulags við fyrrum lóðareiganda Miðskóga 8 um lausn málsins enda verði samkomulagið lagt fram til staðfestingar í bæjarráði.
Málsnúmer 1301513
17
Bréf LEX-lögmanna varðandi framlengingu fyrningarfrests, dags. 15.06.14.
Í bréfinu er farið fram á yfirlýsingu Garðabæjar um að bærinn muni ekki bera fyrir sig fyrningu verði máli vegna kröfu um bætur vegna skipulags stefnt fyrir dóm á tímabilinu frá 1. júlí 2014 til 30. júní 2015.$line$$line$Með bréfum LEX , dags. 8. mars og 30. nóvember 2013 var þess farið á leit að Garðabær myndi ekki bera fyrir sig fyrningu í máli sem eigendur Akrakots höfðuðu vegna meints tjóns vegna skipulagsbreytinga á Álftanesi. Í bréfunum kom fram að aðilar hafi átt í viðræðum um lausn mála sem tengjast meintu tjóni, en í þeim viðræðum hefur Garðabær ekki viðurkennt bótaskyldu. Með samþykktum bæjarráðs 26. mars og 10. des. 2013 var samþykkt að bera ekki fyrir sig fyrningu allt til 30. júní 2014. Með ofangreindu bréfi LEX-lögmanna, dags. 15. júní sl. er þess farið á leit að Garðabær framlengi umræddan frest enn frekar, allt til 30. júní 2015. Viðræður sem átt hafa sér stað milli aðila lúta m.a. að breytingum á skipulagi, í samræmi við óskir landeigenda, sbr. bréf dags. 1. júní sl. $line$$line$Með vísan til þess að vinna við endurskoðun aðalskipulags er nú í gangi er fallist á beiðni eigenda Akrakots að Garðabær muni ekki í skaðabótamáli, sem höfðað væri innan tilgreindra tímamarka, þ.e. fyrir 30. júní 2015, bera fyrir sig fyrningu. Í því felst hins vegar ekki neins konar viðurkenning á meintri bótaskyldu, sbr. og fyrri afstöðu Sveitarfélagsins Álftaness.
Málsnúmer 1301513
18
Bréf LEX - lögmanna varðandi sölu á hluta Akrakots og breytingu á aðalskipulagi, dags. 01.06.14.
Bæjarráð hafnar sölutilboði eigenda Akrakot að fjárhæð kr. 150.000.000 í 5 ha landspildu úr landi Akrakots sem liggur við Kasthúsastjörn.$line$$line$Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara bréfritara.