Bréf LEX-lögmanna varðandi framlengingu fyrningarfrests, dags. 15.06.14.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
24. fundur
Í bréfinu er farið fram á yfirlýsingu Garðabæjar um að bærinn muni ekki bera fyrir sig fyrningu verði máli vegna kröfu um bætur vegna skipulags stefnt fyrir dóm á tímabilinu frá 1. júlí 2014 til 30. júní 2015.$line$$line$Með bréfum LEX , dags. 8. mars og 30. nóvember 2013 var þess farið á leit að Garðabær myndi ekki bera fyrir sig fyrningu í máli sem eigendur Akrakots höfðuðu vegna meints tjóns vegna skipulagsbreytinga á Álftanesi. Í bréfunum kom fram að aðilar hafi átt í viðræðum um lausn mála sem tengjast meintu tjóni, en í þeim viðræðum hefur Garðabær ekki viðurkennt bótaskyldu. Með samþykktum bæjarráðs 26. mars og 10. des. 2013 var samþykkt að bera ekki fyrir sig fyrningu allt til 30. júní 2014. Með ofangreindu bréfi LEX-lögmanna, dags. 15. júní sl. er þess farið á leit að Garðabær framlengi umræddan frest enn frekar, allt til 30. júní 2015. Viðræður sem átt hafa sér stað milli aðila lúta m.a. að breytingum á skipulagi, í samræmi við óskir landeigenda, sbr. bréf dags. 1. júní sl. $line$$line$Með vísan til þess að vinna við endurskoðun aðalskipulags er nú í gangi er fallist á beiðni eigenda Akrakots að Garðabær muni ekki í skaðabótamáli, sem höfðað væri innan tilgreindra tímamarka, þ.e. fyrir 30. júní 2015, bera fyrir sig fyrningu. Í því felst hins vegar ekki neins konar viðurkenning á meintri bótaskyldu, sbr. og fyrri afstöðu Sveitarfélagsins Álftaness.
Bæjarráð Garðabæjar
02
24. fundur
Bæjarráð hafnar sölutilboði eigenda Akrakot að fjárhæð kr. 150.000.000 í 5 ha landspildu úr landi Akrakots sem liggur við Kasthúsastjörn.$line$$line$Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara bréfritara.
Bæjarráð Garðabæjar
03
49. fundur
Bæjarráð samþykkir að verða við erindi bréfritara um að bæjarfélagið muni ekki bera fyrir fyrningu verði máli vegna Akrakots stefnt fyrir dóm á tímabilinu 1. janúar 2014 ? 30. júní 2014.$line$$line$Bæjarráð vísar til skipulagsnefndar að skoða framtíðarmöguleika varðandi skipulag Akrakotslands í tengslum við vinnu við endurskoðun aðalskipulags.
Bæjarráð Garðabæjar
04
13. fundur
<P style="TEXT-ALIGN: justify; LINE-HEIGHT: normal; MARGIN: 0cm 0cm 0pt" class=MsoNormal>Bæjarráð felst á erindi bréfritara um að gefa út yfirlýsingu um að sveitarfélagið muni ekki bera fyrir fyrningu verði máli vegna Akrakots stefnt fyrir dóm á tímabilinu 13. maí og til 31. desember 2013.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /><o:p></o:p></P>
Bæjarráð Garðabæjar
05
4. fundur
<P><P style="TEXT-ALIGN: justify; LINE-HEIGHT: normal; MARGIN: 0cm 0cm 0pt 35.4pt" class=MsoNormal>Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /><o:p></o:p></P></P>