49. fundur
49. fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
10.12.2013
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Erling Ásgeirsson - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- Stefán Snær Konráðsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Kristinn Guðlaugsson - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Bréf Karls Axelssonar, hrl. varðandi fyrningarfrest vegna málefna jarðarinnar Akrakots, dags. 30.11.13.
Bæjarráð samþykkir að verða við erindi bréfritara um að bæjarfélagið muni ekki bera fyrir fyrningu verði máli vegna Akrakots stefnt fyrir dóm á tímabilinu 1. janúar 2014 ? 30. júní 2014.$line$$line$Bæjarráð vísar til skipulagsnefndar að skoða framtíðarmöguleika varðandi skipulag Akrakotslands í tengslum við vinnu við endurskoðun aðalskipulags.
02
Bréf Félagsstofnunar stúdenta varðandi uppsögn samnings um rekstur leiguíbúða fyrir námsmenn, dags. 25.11.13.
Bæjarrráð vísar til fjölskylduráðs að taka til umfjöllunar mögulegar hugmyndir um framtíðarnotkun húsnæðisins.
03
Afgreiðslur byggingarfulltrúa tímabilið 29.11. - 06.12.13.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslur byggingarfulltrúa á umsóknum um byggingarleyfi fyrir tímabilið 29.11. ? 06.12.13 og verða byggingarleyfi útgefin samkvæmt 2. gr. samþykktar um afgreiðslur byggingarnefndar Garðabæjar nr. 863/2011, sbr. 13. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010. Um er að ræða byggingarleyfi vegna framkvæmda við Holtsveg 29.
04
Bréf Kópavogsbæjar varðandi samstarf um athugun á kosti rekstrar sameiginlegs héraðskjalasafns, dags. 28.11.13.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra.
05
Bréf innanríkisráðuneytisins varðandi skil á fjárhagsáætlun 2014 og þriggja ára áætlun, dags. 12.11.13.
Lagt fram.
06
Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi frumvarp til laga um húsaleigubætur (námsmenn), 147.mál, dags. 06.12.13.
Lagt fram.
07
Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi þingsályktun um seinkun klukkunnar og bjartari morgna, dags. 06.12.13.
Lagt fram.
08
Bréf stjórnar Skíðasvæða höfuðborgarsvæðsins varðandi níu mánaðauppjör skíðasvæðanna, dags. 25.11.13.
Lagt fram.