32. fundur
32. fundur
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
í íþróttamiðstöðinni Ásgarði
24.09.2013
Kl. 12:00 - 13:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson - Formaður
- Elín Birna Guðmundsdóttir - Aðalmaður
- Sigurður Bjarnason - Aðalmaður
- Victor Ingi Olsen - Aðalmaður
- Bragi Þorsteinn Bragason - aðalmaður
- Einar Karl Birgisson - áheyrnarfulltrúi
- Kári Jónsson - íþróttafulltrúi
- Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi
Ritari
- Kári Jónsson
Dagskrá
Málsnúmer 1309532
01
Stefna í íþrótta- og tómstundamálum
Komið er að endurskoðun á stefnu Garðabæjar í íþrótta- og tómstundarmálum. Núverandi stefna er á vef Garðabæjar.
Gunnari og Kára var falið að fara yfir stefnuna og gera við hana athugasemdir ásamt því að gera samanburð við önnur bæjarfélög. Málinu framhaldið á næsta fundi.
Málsnúmer 1303626
02
GKG
Umsókn um styrk vegna þátttöku kvennasveitar GKG í EM klúbbliða í Búlgaríu.
ÍTG samþykkir 20.000,- kr á hvern þátttakanda í keppnisliði kvennasveitar GKG í EM í Búlgaríu 2013, alls 60.000,- kr. sem greiddar verða til GKG.
Málsnúmer 1205547
03
KFG Knattspyrnufélag Garðabæjar
Styrkumsókn frá KFG vegna ferðakostnaðar við úrslitakeppni á íslandsmóti í knattspyrnu.
Samþykkt að veita KFG og Skínanda styrki að upphæð 200.000,- kr hvoru vegna kostnaðar við þátttöku í úrslitakeppni KSÍ á íslandsmóti 4. deildar í knattspyrnu.
Málsnúmer 1302210
04
Önnur mál 2013
a. ....$line$b. ....
a. Bragi óskaði eftir samanburðartölum á rekstrarkostnaði mismunandi íþróttamiðstöðva í Garðabæ.b. Rætt um fyrirkomulag verðlaunahátíðar íþróttamanns ársins í janúar næstkomandi. Vegna fjölgunar verðlaunaþega þarf að finna hátíðinni annan stað en í FG. Samþykkt að stefna að því að halda hátíðina í Ásgarði.