Strönd og lækir, mengunarmælingar
Ferill máls
Umhverfisnefnd Garðabæjar
01
7. fundur
Niðurstöður sýnatöku á mælingu mengunar við strendur 29.10.14 og yfirborðs lækja og vatna 06.11.14$line$$line$Mengun kemur fram í niðurstöðum mælinga. Forvarnaraðgerðir á vegum fráveitu Garðabæjar undir stjórn verkfræðinga Stendings ehf. eru í fullum gangi.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
02
4. fundur
Frá Heilbrigðiseftirliti sendar niðurstöður vegna vöktunar 2. lögbundinnar $line$1. Sýnatöku 19. ágúst sl. í yfirborðsvatni í Vífilsstaðavatni, Haunsholtslæk, Arnarneslæk, Urriðavatni og Stórakrókslæk.$line$2. Niðurstöður mælinga strandsýna tekin 28. ágúst 2014 við strendur Garðabæjar s.s. Arnarnesvog og Álftaness.
Lagt fram.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
03
3. fundur
Bæjarverkfræðingur fór yfir stöðu fráveitu og drenlagna í Garðabæ og hvað hafi áunnist síðan átakið hreinir lækir hófst 2012. Hann sagði frá skráningu allra lagna og brunna, ásamt þeim lagfæringum sem gerðar hafa verið. Hann fór yfir hvað er framundan varðandi fráveitumál á Álftanesi.
Nefndarfólk þakkaði greinargott yfirlit yfir málaflokkinn sem nefndin þarf að halda vöku yfir.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
04
40. fundur
Að beiðni Sigurðar Hafliðasonar forstöðumanns Þjónustumiðstöðvar Garðabæjar var lagt fram yfirlit Strendings ehf. um stöðu framkvæmda við hreinsun Arnarneslækjar, tímabilið febrúar - maí 2014.
Umhverfisnefnd er ánægð með þær aðgerðir sem framkvæmdar hafa verið og með þann árangur sem hefur áunnist, enda nauðsynlegt að verja lækina í bæjarlandinu.