Beint í efni

4. fundur

10.09.2014
Umhverfisnefnd Garðabæjar

4. fundur

Umhverfisnefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

10.09.2014

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Jóna Sæmundsdóttir - formaður
  • Berglind Birgisdóttir - aðalmaður
  • Huginn Freyr Þorsteinsson - aðalmaður
  • Súsanna Björg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
  • Þórunn Erla Einarsdóttir - varamaður
  • Erla Bil Bjarnardóttir - umhverfisstjóri

Ritari

  • Erla Bil Bjarnardóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1409052

01

Umhverfisfræðsla - útikennsla 2014

Árleg útikennsla við Vífilsstaðavatn fyrir 7. bekkinga í boði umhverfisnefndar í umsjón Bjarna Jónssonar fiskifræðings hefur verið skipulögð eftirfarandi:$line$1. Flataskóli 29. sept. - þrjár bekkjardeildir.$line$2. Hofsstaðaskóli 30. sept. - þrjár bekkjardeildir.$line$3. Sjálandsskóli 1. okt. - þrjár bekkjardeildir.$line$$line$Fuglaskoðun fyrir 6. bekkinga Álftanesskóla, hefur verið í undirbúningi í tengslum við rannsókn fugla á Álftanesi 2014. Leiðbeinendur verða Jóhann Óli Hilmarsson og Dr. Ólafur Einarsson. $line$Stefnt að útikennslu að vori 2015.$line$

Fræðimenn sem leiðbeinendur í umhverfisfræðslu til grunnskóla eru í boði umhverfisnefndar.

Málsnúmer 1405134

02

Ársfundur Umhverfisstofnunar 2014

Umhverfisstofnun sendir boð 15. ágúst sl. um ársfund náttúruverndarnefnda/umhverfisnefnda sveitarfélaga með Umhverfisstofnun sem fyrirhugað er að halda í október.

Ekki liggur fyrir dagsetning né staðsetning ársfundarins.$line$$line$Lagt fram.

Málsnúmer 1407548

03

Evrópska samgönguvika 2014 - hjólaleiðir

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið boðaði til kynningarfundar þann 20. ágúst sl. um Evrópsku samgönguvikuna dagana 16. - 22. sept. Jóna Sæmundsdóttir formaður sat fundinn.$line$Samráðshópur Staðardagskrár 21 fjallaði um undirbúning dagskrár hjá sveitarfélögum á fundi 03.09.14.

Dagskrá umhverfisnefndar Garðabæjar í tilefni Samgönguvikunar verður "Allir út að hjóla" þriðjudaginn 16. september sem hefst kl.16:30. Hjólað verður frá ráðhúsinu á Garðatorgi eftir nýjum göngu- og hjólastígum í Garðahrauni og meðfram Vífilsstaðavegi, hjólaferð lýkur á Garðatorgi. $line$Þessi viðburður verður auglýstur í Garðapóstinum, á www.gardabaer.is, fésbók, mentor og víðar.$line$$line$Viðburðir sveitarfélaga í Samgönguviku dagana 16. - 22. september verða settir upp á vefsíðum sveitarfélaganna.$line$$line$Nefndin leggur til að uppfært verði kort yfir hjólaleiðir sem er á vef bæjarins. Kortið er hannað hjá Mannviti.$line$$line$Umhverfisnefnd leggur til að hjólastígar séu merktir betur í bænum.

Málsnúmer 1408717

04

Dagur íslenskrar náttúru 2014 - fræðsluganga

Umhverfis- og auðlindaráðuneyti sendi sveitarfélögum bréf dags. 27. ágúst sl. þar sem vakin er athygli á Degi íslenskrar náttúru og sveitarfélögin hvött til að bjóða uppá dagskrá af því tilefni.

Umhverfisnefnd undirbýr fræðslugöngu laugardaginn 27. september um Skógtjörn og Hlið í leiðsögn Ragnheiðar Traustadóttur, fornleifafræðings.$line$$line$Nánar auglýst í Garðapóstinum.

Málsnúmer 1312302

05

Strönd og lækir, mengunarmælingar

Frá Heilbrigðiseftirliti sendar niðurstöður vegna vöktunar 2. lögbundinnar $line$1. Sýnatöku 19. ágúst sl. í yfirborðsvatni í Vífilsstaðavatni, Haunsholtslæk, Arnarneslæk, Urriðavatni og Stórakrókslæk.$line$2. Niðurstöður mælinga strandsýna tekin 28. ágúst 2014 við strendur Garðabæjar s.s. Arnarnesvog og Álftaness.

Lagt fram.

Málsnúmer 1401221

06

Fjárveitingar til umhverfismála 2015

Beiðni um fjárveitingar til umhverfismála við gerð fjárhagsáætlunar 2015.

Umhverfisnefnd sendir tillögu um rannsóknir og verkefni vegna umhverfismála til bæjarráðs til fjárhagsáætlunar 2015.

Málsnúmer 1408481

07

Heiðmörk - vinna og framkvæmdir 2013-2014

Frá Skógræktarfélagi Reykjavíkur sent "Yfirlit um vinnu og framkvæmdir SR í Garðabæjarhluta Heiðmerkur árið 2013-2014" dags. 18. ágúst 2014.

Lagt fram.

Málsnúmer 1409059

08

Starfskýrsla Skógræktarfélags Garðabæjar 2013-2014

Starfsskýrsla Skógræktarfélags Garðabæjar 2013 - 2014 samkvæmt samstarfsamningi.

Lagt fram.

Málsnúmer 1409099

09

Vífilsstaðavatn - veiðileyfi 2015

Frá Ingimar Bergssyni hjá Veiðikortinu ehf. fyrirspurn um veiðileyfi í Vífilsstaðavatn fyrir veiðitímabilið 2015.

Samþykkt samstarf við Veiðikortið ehf. um veiðileyfi í Vífilsstaðavatn veiðitímabilið 2015.

Málsnúmer 1401222

10

Samráðshópur um Staðardagskrá 21 - 2014

Fundargerð samráðshóps um Staðardagskrá 21 frá 3. sept. sl.

Lagt fram til upplýsingar.