Evrópska samgönguvika 2014 - hjólaleiðir
Ferill máls
Umhverfisnefnd Garðabæjar
01
5. fundur
$line$1. Dagskrá umhverfisnefndar í tilefni samgönguviku var kynning á nýjum göngu- og hjólastígum, "Allir út að hjóla" þann 16. sept var vel sótt.$line$2. Formaður kynnti efni ráðstefnu er hét Hjólað til framtíðar, haldinn 19. sept. sl.$line$3. Göngu- og hjólastígakort var uppfært á vefnum í tilefni samgönguviku. Kortið er hannað af Mannviti verkfræðistofu.
Nefndarfólk er ánægt með þátttöku almennings í verkefninu "Allir út að hjóla".$line$$line$Rætt um nauðsyn þess að uppfæra göngu- og hjólaleiðakort fyrir allan Garðabæ í vasabroti.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
02
4. fundur
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið boðaði til kynningarfundar þann 20. ágúst sl. um Evrópsku samgönguvikuna dagana 16. - 22. sept. Jóna Sæmundsdóttir formaður sat fundinn.$line$Samráðshópur Staðardagskrár 21 fjallaði um undirbúning dagskrár hjá sveitarfélögum á fundi 03.09.14.
Dagskrá umhverfisnefndar Garðabæjar í tilefni Samgönguvikunar verður "Allir út að hjóla" þriðjudaginn 16. september sem hefst kl.16:30. Hjólað verður frá ráðhúsinu á Garðatorgi eftir nýjum göngu- og hjólastígum í Garðahrauni og meðfram Vífilsstaðavegi, hjólaferð lýkur á Garðatorgi. $line$Þessi viðburður verður auglýstur í Garðapóstinum, á www.gardabaer.is, fésbók, mentor og víðar.$line$$line$Viðburðir sveitarfélaga í Samgönguviku dagana 16. - 22. september verða settir upp á vefsíðum sveitarfélaganna.$line$$line$Nefndin leggur til að uppfært verði kort yfir hjólaleiðir sem er á vef bæjarins. Kortið er hannað hjá Mannviti.$line$$line$Umhverfisnefnd leggur til að hjólastígar séu merktir betur í bænum.