5. fundur
5. fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
08.10.2014
Kl. 17:00 - 18:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Jóna Sæmundsdóttir - formaður
- Jóhann Gunnar Jóhannsson - aðalmaður
- Berglind Birgisdóttir - aðalmaður
- Huginn Freyr Þorsteinsson - aðalmaður
- Súsanna Björg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
- Þórunn Erla Einarsdóttir - varamaður
- Halldór Halldórsson - varamaður
- Kristinn Hugason - varamaður
- Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir - varamaður
- Sigríður Bylgja Sigurjónsdótti - varamaður
- Erla Bil Bjarnardóttir - umhverfisstjóri
Ritari
- Erla Bil Bjarnardóttir
Dagskrá
01
Evrópska samgönguvika 2014 - hjólaleiðir
$line$1. Dagskrá umhverfisnefndar í tilefni samgönguviku var kynning á nýjum göngu- og hjólastígum, "Allir út að hjóla" þann 16. sept var vel sótt.$line$2. Formaður kynnti efni ráðstefnu er hét Hjólað til framtíðar, haldinn 19. sept. sl.$line$3. Göngu- og hjólastígakort var uppfært á vefnum í tilefni samgönguviku. Kortið er hannað af Mannviti verkfræðistofu.
Nefndarfólk er ánægt með þátttöku almennings í verkefninu "Allir út að hjóla".$line$$line$Rætt um nauðsyn þess að uppfæra göngu- og hjólaleiðakort fyrir allan Garðabæ í vasabroti.
02
Dagur íslenskrar náttúru 2014 - fræðsluganga
Fræðslu- og söguganga sunnudaginn 5. september sl. um land Skógtjarnar og Hliðs í leiðsögn Ragnheiðar Traustadóttur fornleifafræðings.
Mjög góð þátttaka var í sögugöngunni með Ragnheiði. Að lokinni fræðslu og göngu var göngufólki boðið í kakó og meðlæti hjá Jóhannesi Viðar veitingamanni að Hliði.$line$$line$Frétt með nánari upplýsingum um þá staði sem skoðaðir voru eru á www.gardabaer.is$line$
03
Aukin endurvinnsla
Innsent erindi Guðrúnar Birnu Finnsdóttur þann 2. október sl. um frekari flokkun og endurvinnslu sérstaklega á plastúrgangi.
Nefndin er sammála bréfritara. Þetta brýna mál var rætt og nefndin telur rétt að vinna frekar í þessum málum og útfæra hugmyndir.
04
Ársfundur Umhverfisstofnunnar 2014
Lagt fram fundarboð á ársfund náttúruverndarnefnda með Umhverfisstofnun fimmtudaginn 6. nóv. nk. á Hvolsvelli og á sama stað þann 7. nóv. á fund með umsjónaraðilum friðlýstra svæða.
Nefndarfólk athugar með hvort þau komist til fundarins og tilkynna þátttöku til umhverfisstjóra.
05
Skýrsla náttúruverndarnefnda 2014
Umhverfisstofnun minnir á að skila á starfskýrslu náttúruverndarnefnda fyrir starfsárið 2014 til stofnunarinnar fyrir 20. október nk.
Skýrslumálið rætt, umhverfisstjóri vinnur skýrsluna.
06
Ástandsskýrsla friðlýstra svæða 2014
Skila þarf til Umhverfisstofnunnar skýrslu yfir "ástand friðlýstra svæða".
Lögð fram drög gerð af umhverfisstjóra, sem voru samþykkt.
07
Tilnefning fulltrúa í stýrihóps vegna verkefnis um kortlagningu auðlinda í ferðaþjónustu
Auðlindir í ferðaþjónustu - mat á svæðum.$line$Fyrir Garðabæ voru tilnefnd Hulda Hauksdóttir upplýsingarstjóri, Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagsstjóri og Erla Bil Bjarnardóttir umhverfisstjóri.
Umhverfisstjóri upplýsti nefndarfólk um að hún hefði ritað upplýsingar um 41 svæði eða stað í Garðabæ, þar af 4 nýja staði s.s. Minjagarðinn á Hofsstöðum og Wegenerstöpulinn sem ekki komu fram í aðsendum gögnum frá Ferðamálastofu.
08
Samráðshópur um Staðardagskrá 21 - 2014
Samráðshópur um Staðardagskrá 21 kom til fundar í Garðabæinn þann 8. nóvember.
Umhverfisstjóri kynnti málefni fundarins og lagði fram drög að dagskrá.$line$$line$Þar kom áhugavert mál fram þ.e. að Mosfellsbær hefur fengið Landgræðsluna til að kortleggja útbreiðslusvæði lúpínu í landi bæjarfélagsins.
09
Umhverfisfræðsla - útikennsla 2014
Umhverfisfræðsla er í boði umhverfisnefndar þar sem Bjarni Jónsson fiskifræðingur hefur umsjón með útikennslu um lífríki Vífilsstaðavatns.$line$Útikennslan fór fram þann 6. okt. sl. fyrir 7. bekkinga Flataskóla þrjár bekkjadeildir og 7. okt. fyrir 7. bekkinga Hofsstaðaskóla þrjár bekkjadeildir.
Myndir frá útikennslunni skoðaðar. Ánægja með vel heppnaða útikennsludaga skólanna, þó tíðarfarið ruglaði dagskrána.$line$Kynning sett á vef bæjarins frá nemendum við Vífilsstaðavatn.