Umhverfisfræðsla - útikennsla 2014
Ferill máls
Umhverfisnefnd Garðabæjar
01
5. fundur
Umhverfisfræðsla er í boði umhverfisnefndar þar sem Bjarni Jónsson fiskifræðingur hefur umsjón með útikennslu um lífríki Vífilsstaðavatns.$line$Útikennslan fór fram þann 6. okt. sl. fyrir 7. bekkinga Flataskóla þrjár bekkjadeildir og 7. okt. fyrir 7. bekkinga Hofsstaðaskóla þrjár bekkjadeildir.
Myndir frá útikennslunni skoðaðar. Ánægja með vel heppnaða útikennsludaga skólanna, þó tíðarfarið ruglaði dagskrána.$line$Kynning sett á vef bæjarins frá nemendum við Vífilsstaðavatn.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
02
4. fundur
Árleg útikennsla við Vífilsstaðavatn fyrir 7. bekkinga í boði umhverfisnefndar í umsjón Bjarna Jónssonar fiskifræðings hefur verið skipulögð eftirfarandi:$line$1. Flataskóli 29. sept. - þrjár bekkjardeildir.$line$2. Hofsstaðaskóli 30. sept. - þrjár bekkjardeildir.$line$3. Sjálandsskóli 1. okt. - þrjár bekkjardeildir.$line$$line$Fuglaskoðun fyrir 6. bekkinga Álftanesskóla, hefur verið í undirbúningi í tengslum við rannsókn fugla á Álftanesi 2014. Leiðbeinendur verða Jóhann Óli Hilmarsson og Dr. Ólafur Einarsson. $line$Stefnt að útikennslu að vori 2015.$line$
Fræðimenn sem leiðbeinendur í umhverfisfræðslu til grunnskóla eru í boði umhverfisnefndar.