Beint í efni

3. fundur

13.08.2014
Umhverfisnefnd Garðabæjar

3. fundur

Umhverfisnefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

13.08.2014

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Jóna Sæmundsdóttir - formaður
  • Berglind Birgisdóttir - aðalmaður
  • Huginn Freyr Þorsteinsson - aðalmaður
  • Súsanna Björg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
  • Erla Bil Bjarnardóttir - umhverfisstjóri
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur

Ritari

  • Erla Bil Bjarnardóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1403558

01

Vatnsvernd á höfuðborgarsvæðinu - heildarendurskoðun

Bæjarráð vísaði erindi SSH dags. 07.07.14 til umfjöllunar í skipulagsnefnd og umhverfisnefnd.$line$Eysteinn Haraldsson, bæjarverkfræðingur kynnti tillögur stýrishóps um endurskoðun vatnsverndar á höfuðborgarsvæðinu. $line$

Ítarlegri kynningu Eysteins var vel tekið af nefndarfólki, enda er hann verkefninu vel kunnugur með störfum sínum í stýrihópnum.$line$$line$Umhverfisnefnd leggur til við bæjarráð að samþykkja tillögu stýrishópsins.

Málsnúmer 1312302

02

Hreinsun lækja og strandar

Bæjarverkfræðingur fór yfir stöðu fráveitu og drenlagna í Garðabæ og hvað hafi áunnist síðan átakið hreinir lækir hófst 2012. Hann sagði frá skráningu allra lagna og brunna, ásamt þeim lagfæringum sem gerðar hafa verið. Hann fór yfir hvað er framundan varðandi fráveitumál á Álftanesi.

Nefndarfólk þakkaði greinargott yfirlit yfir málaflokkinn sem nefndin þarf að halda vöku yfir.

Málsnúmer 1408343

03

Umhverfismál - umhverfisstefna

Til umfjöllunar voru umhverfismál staða málaflokksins og sýn framundan.$line$Bæjarverkfræðingur kom með tilmæli um að nefndin endurskoðaði og uppfærði umhverfisstefnu Garðabæjar og benti á mál og viðhorfsbreytingar síðan stefnan var gerð 2001.

Umhverfisnefnd líst vel á að vinna að tillögu um endurskoðun umhverfisstefnu Garðabæjar.

Málsnúmer 1408188

04

Sumarátak 2014 - skýrsla

Erla Bil Bjarnardóttir umhverfisstjóri, kynnti starfsemi sumarátaksins. Hver markmið sumarsins hefðu verið í upphafi og hverju hefði tekist að koma í verk.$line$Viðaukar skýrslunnar eru:$line$a.sumarstörf fatlaðra í frístundarúrræðum o.fl., $line$b.tölfræðilegt yfirlit verkefna,$line$c.úrdráttur úr dagbók friðlands Vífilsstaðavatns.

Umhverfisnefnd mun senda bæjarráði skýrsluna til upplýsingar.