Hringsjá á Smalaholti
Ferill máls
Umhverfisnefnd Garðabæjar
01
40. fundur
Gerð hringsjár á Smalaholti er lokið, hringsjána hannaði Jakob Hálfdánarson, tæknifræðingur. Steinsmiðja S. Helgasonar setti hringsjána upp á stöpul hornamarki sveitarfélaganna.$line$Verkefnið var samstarfsverkefni umhverfisráðs Kópavogs og umhverfisnefndar Garðabæjar, einnig kom Skógræktarfélag Garðabæjar að verkefninu.
Umhverfisnefnd leggur til að hringsjáin verði afhjúpuð sunnudaginn 25. maí kl.13:30.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
02
33. fundur
Bréf og reikningur frá Jakobi Hálfdánarsyni fyrir helmings hluta við hönnun og gerð hringsjár á Smalaholti lagt fram. Hringsjáin er samstarfsverkefni umhverfisnefndar Garðabæjar og umhverfisráðs Kópavogs.
<DIV>Þegar hringsjáin verður komin upp mun hún afhjúpuð sameiginlega af bæjarstjórum Garðabæjar og Kópavogs, enda á mörkum bæjarfélaganna.</DIV>