33. fundur
33. fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
08.10.2013
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Júlía Guðrún Ingvarsdóttir - formaður
- Þorsteinn Þorsteinsson - aðalmaður
- Jón Bjarni Þorsteinsson - aðalmaður
- Sigurbjörn Ingimundarson - aðalmaður
- Sigríður Erla Jónsdóttir - aðalmaður
- Elías Jakob Bjarnason - áheyrnarfulltrúi
- Erla Bil Bjarnardóttir - umhverfisstjóri
Ritari
- Erla Bil Bjarnardóttir
Dagskrá
01
Tillögur til umhverfismála á fjárhagsáætlun fyrir árið 2014
Unnið að tillögum til gerðar fjárhagsáætlunar fyrir árið 2014.
Nefndin sendir sínar tillögur til bæjarráðs.
02
Ársfundur náttúruverndarnefnda 2013
Borist hefur beiðni frá Umhverfisstofnun um að umhverfisnefnd Garðabæjar verði gestgjafi ársfundar Umhverfisstofnunnar með náttúruverndarnefndum, þann 24. okt. nk.
Umhverfisnefnd vinnur að undirbúningi að ársfundinum.
03
Skýrsla fornleifarannsókna á Hofsstöðum
Greinargerð um úrvinnslu og útgáfu fornleifarannsóknar á Hofsstöðum 1994-2000, frá Ragnheiði Traustadóttur lögð fram, einnig fjárhagsáætlun og verkáætlun um sama efni árin 2013-2015.
Umhverfisnefnd samþykkti að leggja til áframhaldandi samstarf við menningar- og safnanefnd um skýrslu yfir fornleifarannsóknina á Hofsstöðum 1994-2000, sem gert er ráð fyrir að verði gefin út árið 2015.
04
Bréf grænna hæla um umhverfisvottun sveitarfélag, dags. 23.09.13.
Erindi Guðrúnar Bergmann frkvst. Grænna Hæla dags. 23. sept. sl. vísað frá bæjarráði 1. okt. til kynningar í umhverfisnefnd.
Lagt fram.
05
Vífilsstaðavatn - veiðileyfi 2014
Yfirlit frá Veiðikortinu ehf. 4. okt. sl. yfir seld veiðileyfi í Vífilsstaðavatni og ósk um áframhaldandi samstarf með veiðikortið 2014.
Umhverfisnefnd samþykkir samstarf um veiðikortið árið 2014.
06
Fundargerðir stjórnar Reykjanesfólkvangs 2013
Innsend fundargerð stjórnar Reykjanesfólksvangs frá 3. okt. sl.
Lögð fram.
07
Skil á skýrslum um refa- og minkaveiðar 2012/2013
Bréf frá Umhverfisstofnun dags. 3.10.13 um skil á skýrslum um refa- og minkaveiðar á veiðiárinu 2012-2013.
Umhverfisstjóri mun skila veiðiskýrslum fyrir tímabilið.
08
Hringsjá á Smalaholti
Bréf og reikningur frá Jakobi Hálfdánarsyni fyrir helmings hluta við hönnun og gerð hringsjár á Smalaholti lagt fram. Hringsjáin er samstarfsverkefni umhverfisnefndar Garðabæjar og umhverfisráðs Kópavogs.
Þegar hringsjáin verður komin upp mun hún afhjúpuð sameiginlega af bæjarstjórum Garðabæjar og Kópavogs, enda á mörkum bæjarfélaganna.