Beint í efni

35. fundur

20.05.2014
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

35. fundur

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

20.05.2014

Kl. 17:15 - 20:15

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Páll Jóhann Hilmarsson - formaður
  • Steinunn Jóhanna Bergmann - aðalmaður
  • Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
  • Elín Thorarensen - aðalmaður
  • Kjartan Örn Sigurðsson - áheyrnarfulltrúi
  • Helgi Grímsson - fulltrúi skólastjóra
  • Ragnheiður Stephensen - fulltrúi kennara
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Katrín Friðriksdóttir - deildarstjóri skóladeildar
  • Eva Ósk Ármannsdóttir - skjalastjóri
  • Kristín Harðardóttir - varamaður

Ritari

  • Katrín Friðriksdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1311354

01

Tillaga um að taka upp viðræður við ríkið um rekstur Fjölbrautaskólans í Garðabæ

Erindi vísað til skólanefndar frá bæjarráði

Skýrsla Gunnlaugs Sigurðssonar og Þorsteins Þorsteinssonar tekin til umræða. Umræður um fljótandi skólaskil og framkvæmd þeirra m.a. rætt um hvort ástæða sé til að taka nemendur inn í fyrsta bekk tvisvar á ári. Skólanefnd lítur innihald skýrslunnar jákvæðum augum og telur margt af því sem þar er nefnt þegar vera komið til framkvæmda eða koma til framkvæmda með nýrri skólastefnu sem samþykkt hefur verið í bæjarstjórn. Skýrslunni er vísað til frekari umræðu í nýrri skólanefnd.

Málsnúmer 1403071

02

Skóladagatal 2014-2015

Beiðni Alþjóðaskólans um breytingu á skóladagatali 2014-2015

Samþykkt er breyting á skóladagatali Alþjóðaskólans fyrir skólaárið 2014-2015. $line$Lagt er til að gengið verði frá reglum um frávik frá skóladagatali þannig að sömu skólar geti ekki árlega beðið um breytingu á skóladagatali.

Málsnúmer 1405344

03

Samantekt á helstu störfum skólanefndar grunnskóla 2010-2014

Skólanefnd fagnar samantektinni og felur skóladeild að bæta inn tölulegum upplýsingum um nemendafjölda í grunnskólum bæjarins hvert skólaár fyrir sig.