Beint í efni

30. fundur

03.04.2014
Leikskólanefnd Garðabæjar

30. fundur

Leikskólanefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

03.04.2014

Kl. 16:30 - 18:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Lúðvík Örn Steinarsson - formaður
  • Ásta Hrafnhildur Garðarsdóttir - aðalmaður
  • Heimir Erlingsson - aðalmaður
  • Kjartan Örn Sigurðsson - áheyrnarfulltrúi
  • Anna Magnea Hreinsdóttir - leikskólafulltrúi
  • Ída Björg Unnarsdóttir - fulltrúi starfsmanna
  • Hafdís Guðný Jakobsdóttir - fulltrúi dagforeldra
  • Kristín Sigurbergsdóttir - fulltrúi leikskólastjóra

Ritari

  • Anna Magnea Hreinsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1401166

01

Skólanámskrár leikskóla 2014

Skólanámskrá Krakkakots og umsögn foreldraráðs

Skólanámskrá náttúruleikskólans Krakkakots lögð fram ásamt umsögn foreldraráðs. Krakkakot leggur áherslu á að kynna náttúruna fyrir börnum og umhirðu dýra. Uppeldisstefnan Uppeldi til ábyrgðar er lögð til grundvallar með áherslu á jákvæð samskipti og gagnkvæma virðingu. Skólanámskráin lýsir vel því góða starfi sem fram fer í Krakkakoti.

Málsnúmer 1401166

02

Skólanámskrár leikskóla 2014

Umsögn foreldraráðs með skólanámskrá Ása

Umsögn foreldraráðs Ása um skólanámskrá leikskólans lögð fram. Telur foreldraráðið námskránna endurspegla vel þær áherslur sem lagðar eru í skólastarfi leikskólans og gefur skýra mynd af þeirri starfsemi sem þar fer fram.

Málsnúmer 1401166

03

Skólanámskrár leikskóla 2014

Skólanámskrá Akra og umsögn foreldraráðs

Skólanámskrá Akra ásamt umsögn foreldraráðs lögð fram og rædd. Á Ökrum eru gildin Virkni og vellíðan lögð til grundvallar. Leikskólinn hefur nú starfað í rúm tvö ár og hefur mótað sér stefnu í starfsháttum sem skólanámskráin endurspeglar vel. Starfshættirnir endurspegla hugmyndir um að börn læri með því að framkvæma í jákvæðum samskiptum í anda uppbyggingarstefnunnar. Skólanámskráin gerir starfsemi leikskólans góð skil og er vel sett fram.

Málsnúmer 1310553

04

Skólastefna Garðabæjar 2014-2017

Drög að skólastefnu Garðabæjar

Drög að skólastefnu Garðabæjar lögð fram og rædd. Engar athugasemdir voru gerðar við það sem snýr að leikskólastiginu.

Málsnúmer 1302428

05

Uppbygging leikskóla á næstu árum

Staða biðlista og úrræði

Rætt var um stöðu biðlistans og þau úrræði sem gripið verður til á næstu mánuðum. Viðbygging verður gerð við Litlu Ása á Vífilstöðum sem mun rúma yngstu börnin á biðlistanum.

Málsnúmer 1403746

06

Umsókn um endurnýjun á leyfi til daggæslu barna í heimahúsi

Umsókn um framhaldsleyfi lagt fram.

Svava Bjarnadóttir kt. 210564-3479 fær leyfi til gæslu 5 barna til þriggja ára með fyrirvara um að öll gögn berist.

Málsnúmer 1403645

07

Umsókn um leyfi til daggæslu barna í heimahúsi

Umsókn um leyfi til gæslu eins barns í fjóra mánuði.

Ásdís Garðarsdóttir kt. 280157-7169 fær leyfi til gæslu eins barns í fjóra mánuði.

Málsnúmer 1401167

08

Kynningar og önnur mál 2014

Rætt um þingsályktunartillögu um leikskóla að loknu fæðingarorlofi. Mennta- og menningarmálaráðherra var falið að skipa nefnd með þátttöku sveitarfélaganna, sérfræðinga og hagsmunaaðila sem geri tillögu að áætlun um hvernig sveitarfélögin standi að því að bjóða leikskólaúrræði strax og fæðingarorlofi lýkur. Miðað er við að þegar fæðingarorlof hefur verið lengt í 12 mánuði árið 2016 verði sveitarfélög um landið reiðubúin að veita þjónustuna.