20. fundur
20. fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
27.05.2014
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Erling Ásgeirsson - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- Stefán Snær Konráðsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Kristinn Guðlaugsson - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Bréf Védísar Ingólfsdóttur og Thomas Viderö varðandi kostnaðarþátttöku í endurnýjun og viðhaldi girðingar við lóð, dags. 24.04.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari athugunar bæjarstjóra.
02
Bréf Jón R. Daðasonar varðandi um niðurfellingu fasteignagjalda vegna aldurs og minjagildi húss, ódags.
Í bréfinu er farið fram á niðurfellingu fasteignagjalda af húsinu á Breiðabólsstöðum en húsnæðið sem byggt var 1884 telst friðað mannvirki samkvæmt ákvæði 1. mgr. 29. gr. laga um menningarminjar nr. 80/2012 en þar kemur fram að öll hús sem eru 100 ára eða eldri eru friðuð.$line$$line$Bæjarritari gerði grein fyrir að í 5. mgr. 19. gr. sömu laga er mælt fyrir um heimild til að lækka eða fella niður fasteignagjöld af friðlýstum mannvirkjum.$line$$line$Bæjarráð vísar málinu til nánari athugunar bæjarstjóra.
03
Bréf tómstundafulltrúa varðandi laun í Vinnuskóla Garðabæjar 2014, dags. 15.05.14.
Bæjarráð samþykkir tillögu tómstundafulltrúa um eftirfarandi laun í Vinnuskóla Garðabæjar árið 2014.$line$Unglingar fæddir 1998 kr. 550/klst.$line$Unglingar fæddir 1999 kr. 419/klst.$line$Unglingar fæddir 2000 kr. 373/klst.$line$$line$Fyrirkomulag vinnu er eftirfarandi:$line$Árgangur 1998 og 1999 5,5 klst. mánudaga til fimmtudaga og og 3,5 klst. á föstudögum.$line$Samtals 25,5 klst. á viku. $line$Starfstími: 11. júní ? 25. júlí.$line$$line$Árgangur 2000: 3,5 klst. mánudaga til fimmtudaga$line$Samtals 12,5 klst. á viku. $line$Starfstími: 12. júní ? 25. júlí.$line$$line$Bæjarráð samþykkir tillögu um að gjaldtaka vegna garðaþjónustu hjá elli- og örorkulífeyrisþegum verða kr. 270 fyrir hverja unna klst.
04
Bréf Þjóðskrár Íslands varðandi leiðréttingu á kjörskrá 2014, dags. 16.05.14.
Í bréfinu kemur fram að Helga Friðriksdóttir, kt. 201243-4249 og Hafsteinn B. Halldórsson, kt. 250339-4019 hafi þann 6. maí sl. verið búin að tilkynna lögheimilisflutning að Kirkjulundi 12. Garðabæ.$line$$line$Bæjarráð samþykkir með vísan 10. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna að leiðrétta kjörskrá Garðabæjar í samræmi við ofangreint.
05
Bréf innanríkisráðuneytisins varðandi siðareglur kjörinna fulltrúa hjá Garðabæ, dags. 19.05.14.
Lagt fram.
06
Bréf Hauks G. Garðarssonar og Katrínar S. Einarsdóttur varðandi stækkun lóðar að Brekkuási 13, dags. 16.05.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar tækni- og umhverfissvið.
07
Tilboð í framkvæmdir við viðbyggingu Hofsstaðaskóla
Eftirfarandi tilboð lögð fram:$line$$line$Þarfaþing kr. 418.949.275$line$Sveinbjörn Sig og Skrauta kr. 465.356.669$line$Spöng kr. 497.747.352$line$Jáverk kr. 425.798.779$line$ÍAV kr. 437.881.975$line$$line$Við opnun tilboða lagði Þarfaþing fram athugasemd varðandi lið 5.5.3 í útboðslýsingu.$line$$line$Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins til næsta fundar.
08
Bréf Kristjáns A. Gunnarssonar varðandi umsókn um styrk vegna þátttöku á Olympíuleikum í stærðfræði, dags. 13.05.14.
Bæjarráð samþykkir að að verða við erindi bréfritara um að greiða honum sumarlaun 2014 vegna undirbúnings fyrir þátttöku í Alþjóða olympíuleikjunum í stærðfræði.
09
Bréf sýslumanns varðandi umsögn um rekstrarleyfi fyrir veitingastarfsemi að Garðatorgi 3 (NUR), dags. 16.05.14.
Bæjarráð gerir fyrir sitt leyti ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
10
Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi úthlutun úr Endurmenntunarsjóði grunnskóla 2014, dags. 21.05.14.
Í bréfinu kemur fram að skóladeild Garðabæjar hefur fengið úthlutað kr. 1.440.000 úr Endurmenntunarsjóði grunnskóla til eftirfarandi verkefna.$line$$line$Faglæsi - læsi ólíkra námssviða.$line$Fagleg kennsla í náttúrugreinum frá fyrsta skóladegi.
11
Uppbygging leikskóla að Vífilsstöðum.
Lagðir fram uppdrættir vegna stækkunar ungbarnaleikskóla á Vífilsstöðum.
12
Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2015-2040.
Steinþór Einarsson og Stefán Snær Konráðsson, fulltrúar Garðabæjar í svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins gerðu grein fyrir þeirri afgreiðslu nefndarinnar um að fallast á fyrir sitt leyti á tillögu að breytingu á svæðisskipulaginu en að vísa því til næstu nefndar að taka formlega ákvörðun um auglýsingu á kynningu tillögunnar.