1. fundur
1. fundur
Leikskólanefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
12.08.2014
Kl. 17:00 - 17:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson - formaður
- Viktoría Jensdóttir - aðalmaður
- Kristjana F Sigursteinsdóttir - aðalmaður
- Guðfinna Eyrún Ingjaldsdóttir - aðalmaður
- Snævar Sigurðsson - aðalmaður
- Anna Magnea Hreinsdóttir - leikskólafulltrúi
- Ída Björg Unnarsdóttir - fulltrúi starfsmanna
- Kristín Sigurbergsdóttir - fulltrúi leikskólastjóra
Ritari
- Anna Magnea Hreinsdóttir
Dagskrá
01
Leikskólanefnd - hlutverk
Farið var yfir hlutverk leikskólanefndarinnar, lög og reglugerðir kynntar ásamt aðalnámskrá leikskóla.
02
Uppbygging leikskóla á næstu árum
Formaður fór yfir fjölda íbúa í Garðabæ og fjölda barna á leikskólaaldri á síðastliðnum árum. Einnig kynnti hann helstu skref í uppbyggingu leikskóla á næstu árum.
03
Úttekt á matseðlum leikskóla í Garðabæ
Niðurstöður næringarfræðings eftir úttekt á matseðlum leikskóla í Garðabæ
Niðurstöður úttektar næringarfræðings sýna að nánast alltaf er farið eftir opinberum ráðleggingum hvað varðar hráefnisval og fjölbreytni í matargerð í leikskólum Garðabæjar. Framboð af grænmeti og ávöxtum er til mikillar fyrirmyndar.
04
Úttekt á fyrirkomulagi og framkvæmd sérfræðiþjónustu í sex sveitarfélögum
Lögð fram skýrsla um fyrirkomulag og framkvæmd sérfræðiþjónustu sex sveitarfélaga. Til að draga úr miðstýringu eru sveitarfélög hvött til þess að færa eins og kostur er þjónustuna nær skólum með beinum aðgangi að sérfræðingum og tengiliðum í skólum.
05
Umsókn um endurnýjun á leyfi til daggæslu barna í heimahúsi
Leyfi fyrir 1 barn
Sigríður Þórhallsdóttir kt. 280353-2729 fær leyfi til gæslu eins barns til eins árs.
06
Umsókn um endurnýjun á leyfi til daggæslu barna í heimahúsi
Ásbjörg Ólöf Sigurðardóttir kt. 160178-3619 fær leyfi til gæslu fimm barna til fjögurra ára með fyrirvara um að öll gögn berist.