26. fundur
26. fundur
Leikskólanefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
12.12.2013
Kl. 16:30 - 16:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Lúðvík Örn Steinarsson - formaður
- Heimir Erlingsson - aðalmaður
- Kristjana F Sigursteinsdóttir - aðalmaður
- Ásdís Magnúsdóttir - aðalmaður
- Kjartan Örn Sigurðsson - áheyrnarfulltrúi
- Anna Magnea Hreinsdóttir - leikskólafulltrúi
- Ída Björg Unnarsdóttir - fulltrúi starfsmanna
- Lovísa Anna Pálmadóttir - fulltrúi foreldra
- Kristín Sigurbergsdóttir - fulltrúi leikskólastjóra
Ritari
- Anna Magnea Hreinsdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1302428
01
Uppbygging leikskóla á næstu árum
Gunnar Einarsson bæjarstjóri er gestur fundarins.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir hugmyndum um fjölgun leikskólarýma. Má þar fyrst nefna stækkun Lundabóls. $line$Einnig er verið að vinna að því að þróa leikskóladeild fyrir 4 og 5 ára börn í Flataskóla í samráði við skólastjórnendur.$line$Samhliða þessu er verið er að skoða frekari uppbyggingu ungbarnaleikskóla.$line$Að lokum nefndi bæjarstjóri að áætlað er að fyrsti áfangi leik- og grunnskóla í Urriðaholti verði tekinn í gagnið haustið 2016.$line$Umræður urðu um málið. Fram kom að mikilvægt er að leikskólanefnd sé upplýst um byggðarþróun í Garðabæ svo að hún geti brugðist við þörf íbúa fyrir leikskóladvöl og vistun hjá dagforeldrum.
Málsnúmer 1311010
02
Umsókn um styrk
Erindi frá Rannsóknarstofnun í menntunarfræðum ungra barna um útgáfu á bók.
Umsókn RannUng um styrk til útgáfu rits um innleiðingu grunnþátta menntunar í leikskólum í Kraganum rædd. $line$Í ritinu verður gerð grein fyrir niðurstöðum rannsóknar sem unnin var í einum leikskóla í Garðabæ, Hafnarfirði, Kópavogi, Mosfellsbæ og Seltjarnarnesi árin 2012-2014. Erindinu hefur verið vísað til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2014.
Málsnúmer 1311526
03
Þátttaka í tilraunaverkefninu Fri for Mobberi
Erindi Barnaheilla um þátttöku í tilraunaverkefni gegn einelti í leikskólum.
Barnaheill á Íslandi eru að kanna möguleika á að innleiða í leikskólum á Íslandi danskt forvarnarverkefni gegn einelti. Tilraunaverkefni verður hrundið af stað í einum leikskóla í Garðabæ á árinu 2014 ásamt einum leikskóla í sex öðrum sveitarfélögum. Erindinu hefur verið vísað til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2014.
Málsnúmer 1301097
04
Kynningar og önnur mál 2013
Í tilefni af umræðu í fjölmiðlum um kennara og aðra starfsmenn sem kvartað er undan var rætt um mikilvægi þess að viðbragðsáætlun sé til staðar í Garðabæ til að koma ábendingum um það sem betur má fara í farveg.