Kynningar og önnur mál 2013
Ferill máls
Leikskólanefnd Garðabæjar
01
26. fundur
Í tilefni af umræðu í fjölmiðlum um kennara og aðra starfsmenn sem kvartað er undan var rætt um mikilvægi þess að viðbragðsáætlun sé til staðar í Garðabæ til að koma ábendingum um það sem betur má fara í farveg.
Leikskólanefnd Garðabæjar
02
25. fundur
Kynning á leikskóladeild leikskólans Sjálands í Sjálandsskóla. Unnar Freyr Unnarsson kjarnastjóri og Ída Jensdóttir leikskólastjóri kynntu starfsemi leikskóladeildarinnar en í henni dvelja nú 41 barn sem er fjölgun um 20 börn frá síðasta ári.
Leikskólanefnd Garðabæjar
03
24. fundur
1) Þróunarverkefnið iPad í leikskólastarfi í samstarfi við Norræna vinabæi Garðabæjar kynnt. Verkefnið fékk styrk að upphæð 4.800.000 frá Nordplus. Verkefnið Námsbók barna fékk einnig 2.500.000 styrk frá Sprotasjóði en markmið þess er að þróa aðferðir við að meta styrkleika, hæfni og getu barna í leikskólum. Tilraunaverkefnið Heilsueflandi leikskólar verður unnið í þremur leikskólum í vetur; Bæjarbóli sem leggur áherslu á hreyfingu, Sunnuhvoll sem leggur áherslu á tannvernd og Sjáland sem leggur áherslu á næringu. Einnig var Sunnuhvoli sérstaklega úthlutaðar 400.000 krónur af Landlæknisembættinu til að þróa heilsusamlegt starfsumhverfi fyrir yngstu börnin og starfsfólkið. Fleiri þróunarverkefni eru unnin á leikskólunum veturinn 2013-2014 og má þar helst nefna heimspeki í skólastarfi, kynheilbrigði og vellíðan á öllum skólastigum, innleiðingu barnasáttmálans í samstarfi við Unicef og forvarnarverkefni gegn einelti í samstarfi við Barnaheill.2) Framkvæmdir við nýtt húsnæði fyrir Litlu Ása ganga vel og er fyrirhugað að flytja starfsemina í byrjun nóvember.3) Rætt um námskeið í uppeldi barna fyrir foreldra í Garðabæ.
Leikskólanefnd Garðabæjar
04
23. fundur
Kynning leikskólastjóra Sunnuhvols
a) Rætt um viðhald á Litlu Ásum við Ránargrund en starfsemin verður flutt í húsnæði við Vífilstaði á næstu mánuðum. Búið er að kynna flutninginn á fundi með starfsfólki og foreldrum barna á Litlu Ásum. b) Helga Kristjánsdóttir leikskólastjóri Sunnuhvols kynnti breytingar á starfsemi Sunnuhvols sem mun á næstu árum breytast í ungbarnaleikskóla fyrir börn á aldrinum 12-24 mánaða. Húsnæði leikskólans var skoðað og þær breytingar sem átt hafa sér stað á skiptiaðstöðu og hljóðvist.
Leikskólanefnd Garðabæjar
05
22. fundur

a) Staðan á leikskólamálum tekin. Undirbúningur fyrir leikskóla í Flataskóla gengur vel. Verið er að vinna að hugmyndarvinnu með arkitekt. Einnig er unnið að því að öll börn sem verða 18 mánaða í haust bjóðist leikskóladvöl.

b) Fulltrúi foreldra í leikskólanefnd upplýsti um fund fulltrúa foreldrafélaga með bæjarstjóra, forstöðumanni fræðslu- og menningarsviðs og leikskólafulltrúa. Til umræðu voru öryggismál leikskóla, viðhald húsa og lóða, starfsmannamál og þróunarverkefni. Almenn ánægja var hjá fulltrúunum með störf leikskólanna.Í framhaldi af fundinum var ákveðið að hitta bæjarstjóra aftur í haust.

c) Leikskólafulltrúi greindi frá viðræðum við leikskólastjóra sem hefur það að leiðarljósi að brúa bilið vegna leikskólaplássa fram til þess að Flataskóli verði tekinn í gagnið.

Leikskólanefnd Garðabæjar
06
21. fundur

Fyrirspurn barst nefndinni um rekstur ungbarnaleikskóla í Garðabæ frá Bjargir leikskólar.

Leikskólanefnd Garðabæjar
07
19. fundur
Leikskólastjórar Holtakots og Krakkakots kynna leikskólana og segja frá starfi þeirra

Nefndarmönnum voru kynntar helstu áherslur í starfi leikskólanna á Álftanesi, annars vegar heilsustefnu Holtakots og náttúrustefnu Krakkakots. Leikskólarnir eru góð viðbót við fjölbreytta flóru leikskóla í Garðabæ.

Kjartan Örn Sigurðsson áheyrnarfulltrúi gerði nefndinni einnig grein fyrir störfum fræðslunefndar Álftanes.

Leikskólanefnd Garðabæjar
08
19. fundur
Fyrirhugað skólaþing 18 janúar 2013

Garðabær boðar til þings um skólamál undir fyrirsögninni Skólasamfélagið í Garðabæ - sóknarfæri föstudaginn 18. janúar nk.

Á þinginu gefst þátttakendum færi á að koma með hugmyndir um hvernig má auka samfellu í námi barna og ungmenna í Garðabæ frá leikskóla til stúdentsprófs. Nefndarmenn eru hvattir til að mæta.