23. fundur
23. fundur
Leikskólanefnd Garðabæjar
í Garðabæ
05.09.2013
Kl. 16:30 - 18:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Lúðvík Örn Steinarsson - formaður
- Ásta Hrafnhildur Garðarsdóttir - aðalmaður
- Heimir Erlingsson - aðalmaður
- Ásdís Magnúsdóttir - aðalmaður
- Kjartan Örn Sigurðsson - áheyrnarfulltrúi
- Anna Magnea Hreinsdóttir - leikskólafulltrúi
- Ída Björg Unnarsdóttir - fulltrúi starfsmanna
- Hafdís Guðný Jakobsdóttir - fulltrúi dagforeldra
- Lovísa Anna Pálmadóttir - fulltrúi foreldra
- Kristín Sigurbergsdóttir - fulltrúi leikskólastjóra
Ritari
- Anna Magnea Hreinsdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1308346
01
Rafræn skráning á atferlisþjálfun
Umsókn um styrk til þróunar
Erindi leikskólans Sjálands um þróunarstyrk vegna innleiðingu á rafrænni skráningu í atferlisþjálfun sem bæjarráð vísaði til nefndarinnar rædd. Leikskólanefnd tekur jákvætt í erindið og mælir með því að leikskólanum verði veittur styrkur. Nefndin leggur til að þróunarverkefnið verði kynnt öðru starfsfólki á námskeiði þegar því lýkur.
Málsnúmer 1308244
02
Ársskýrsla leikskóla 2012-2013
Samantekt leikskólafulltrúa
Samantekt leikskólafulltrúa í ársskýrslu leikskóla lögð fram og rædd. Rætt um hlutfall leikskólakennara og annars uppeldismenntaðs starfsfólks og til hvaða úrræða er hægt að grípa til að fjölga leikskólakennurum. Rætt um þjónustu dagforeldra og niðurstöður ánægjukönnunar. Einnig rætt um fjölgun leikskólabarna í Garðabæ.
Málsnúmer 1212053
03
Skóladagatal 2013-2014
Beiðni Hjallastefnu á flutningi á skipulagsdegi
Beiðni leikskóla Hjallastefnunnar um tilhliðrun á starfsdegi frá 28. október til 4. október vegna ráðstefnu Hjallastefnunnar tekið fyrir. Leikskólanefnd ítrekar viðmiðunarreglur nefndarinnar varðandi flutning á starfsdegi. Því er beint til Hjallastefnunnar að taka mið af samræmdu skóladagatali í Garðabæ þegar ráðstefna Hjallastefnunnar er skipulögð ef nokkur kostur er. Beiðnin er samþykkt með ítrekun um að beiðni um tilhliðrun berist ekki aftur innan frests viðmiðunarreglna.
Málsnúmer 1301097
04
Kynningar og önnur mál 2013
Kynning leikskólastjóra Sunnuhvols
a) Rætt um viðhald á Litlu Ásum við Ránargrund en starfsemin verður flutt í húsnæði við Vífilstaði á næstu mánuðum. Búið er að kynna flutninginn á fundi með starfsfólki og foreldrum barna á Litlu Ásum. b) Helga Kristjánsdóttir leikskólastjóri Sunnuhvols kynnti breytingar á starfsemi Sunnuhvols sem mun á næstu árum breytast í ungbarnaleikskóla fyrir börn á aldrinum 12-24 mánaða. Húsnæði leikskólans var skoðað og þær breytingar sem átt hafa sér stað á skiptiaðstöðu og hljóðvist.