Beint í efni

24. fundur

03.10.2013
Leikskólanefnd Garðabæjar

24. fundur

Leikskólanefnd Garðabæjar

í Garðabæ

03.10.2013

Kl. 16:30 - 18:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Lúðvík Örn Steinarsson - formaður
  • Ásta Hrafnhildur Garðarsdóttir - aðalmaður
  • Heimir Erlingsson - aðalmaður
  • Kristjana F Sigursteinsdóttir - aðalmaður
  • Kjartan Örn Sigurðsson - áheyrnarfulltrúi
  • Anna Magnea Hreinsdóttir - leikskólafulltrúi
  • Hafdís Guðný Jakobsdóttir - fulltrúi dagforeldra
  • Lovísa Anna Pálmadóttir - fulltrúi foreldra
  • Kristín Sigurbergsdóttir - fulltrúi leikskólastjóra

Ritari

  • Anna Magnea Hreinsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1212053

01

Skóladagatal 2013-2014

Beiðni Akra, Holtakots og Krakkakots um flutning á skipulagsdegi vegna námskeiðs.

Beiðni Akra, Holtakots og Krakkakots um flutning á starfsdegi vegna námskeiðs er lögð fram með góðum fyrirvara. Leikskólanefnd óskar eftir víðtæku samráði við foreldra leikskólanna og biður um skriflega afstöðu foreldraráða til beiðninnar fyrir næsta fund. Afgreiðslu frestað.

Málsnúmer 1309427

02

Starfsáætlanir leikskóla 2013-2014

Starfsáætlanir leikskólanna lagðar fram með umsögn foreldraráða og ræddar. $line$Leikskólanefnd telur þær endurspegla það góða og fjölbreytta starf sem unnið er á leikskólum í Garðabæ.

Málsnúmer 1303152

03

Flataskóli, samrekinn leik- og grunnskóli

Ólöf Sigurðardóttir skólastjóri og Þóra Dögg Ómarsdóttir deildarstjóri kynntu starfsemi 5 ára bekkjar Flataskóla og teikningar af fyrirhugaðri leikskóladeild.

Málsnúmer 1301097

04

Kynningar og önnur mál 2013

1) Þróunarverkefnið iPad í leikskólastarfi í samstarfi við Norræna vinabæi Garðabæjar kynnt. Verkefnið fékk styrk að upphæð 4.800.000 frá Nordplus. Verkefnið Námsbók barna fékk einnig 2.500.000 styrk frá Sprotasjóði en markmið þess er að þróa aðferðir við að meta styrkleika, hæfni og getu barna í leikskólum. Tilraunaverkefnið Heilsueflandi leikskólar verður unnið í þremur leikskólum í vetur; Bæjarbóli sem leggur áherslu á hreyfingu, Sunnuhvoll sem leggur áherslu á tannvernd og Sjáland sem leggur áherslu á næringu. Einnig var Sunnuhvoli sérstaklega úthlutaðar 400.000 krónur af Landlæknisembættinu til að þróa heilsusamlegt starfsumhverfi fyrir yngstu börnin og starfsfólkið. Fleiri þróunarverkefni eru unnin á leikskólunum veturinn 2013-2014 og má þar helst nefna heimspeki í skólastarfi, kynheilbrigði og vellíðan á öllum skólastigum, innleiðingu barnasáttmálans í samstarfi við Unicef og forvarnarverkefni gegn einelti í samstarfi við Barnaheill.2) Framkvæmdir við nýtt húsnæði fyrir Litlu Ása ganga vel og er fyrirhugað að flytja starfsemina í byrjun nóvember.3) Rætt um námskeið í uppeldi barna fyrir foreldra í Garðabæ.