22. fundur
22. fundur
Leikskólanefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
16.05.2013
Kl. 16:30 - 16:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Lúðvík Örn Steinarsson - Formaður
- Kristjana F Sigursteinsdóttir - Aðalmaður
- Ásdís Magnúsdóttir - Aðalmaður
- Kjartan Örn Sigurðsson - áheyrnarfulltrúi
- Anna Magnea Hreinsdóttir - leikskólafulltrúi
- Hafdís Guðný Jakobsdóttir - fulltrúi dagforeldra
- Lovísa Anna Pálmadóttir - fulltrúi foreldra
- Kristín Sigurbergsdóttir - fulltrúi leikskólastjóra
- Birna Ólafsdóttir
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Dagskrá
Málsnúmer 1305137
01
Heimsókn presta í leikskóla
Erindi frá foreldrum barns í leikskóla í Garðabæ

Erindi frá foreldrum barns í leikskóla í Garðabæ varðandi heimsóknir prests í leikskólann lagt fram og rætt.

Viðmið mennta- og menningarmálaráðuneyti um samskipti skóla og trúfélaga skoðuð svo og reglur sem sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu hafa sett sér. Nefndin leggur til að fræðslu- og menningarsvið skoði hvort grundvöllur sé til gerðar sameiginlegra viðmiða leik- og grunnskóla um samskipti við trúfélög sem byggi á viðmiðum ráðuneytis. Leikskólafulltrúa falið að svara bréfritara með vísan til þessa.

Málsnúmer 1212053
02
Skóladagatal 2013-2014

Skóladagatal 2013-2014 lagt fram ásamt umsögnum foreldraráða og samþykkt.

Málsnúmer 1305138
03
Viðhorfskönnun dagforeldrar 2013

Farið yfir árlega viðhorfskönnun foreldra barna hjá dagforeldrum. Fram kemur að mikill meirihluti svarenda er mjög ánægður með þá þjónustu sem dagforeldrar veita. Nefndin undirstrikar mikilvægi þessarar þjónustu samhliða uppbyggingu ungbarnaleikskóla í Garðabæ og fagnar niðurstöðu könnunarinnar sem sýnir fram á ánægju foreldra með þjónustuna. Rætt hvort og með hvaða hætti nefndin gæti stutt frekar við starf dagforeldranna.

Málsnúmer 1304729
04
Styrkur úr Sprotasjóði 2013

Þróunarverkefnið Námsbók barnsins kynnt en því var veittur kr. 2.500.000 í styrk frá Sprotasjóði.

Önnur þróunarverkefni rædd.

Málsnúmer 1305388
05
Umsókn um leyfi til daggæslu barna í heimahúsi
Lögð fram umsókn frá Þórey Daníelsdóttir, kt. 280862-4449 um byrjendaleyfi.

Leyfi veitt fyrir 4 börnum til eins árs að því tilskyldu að öll gögn berist.

Málsnúmer 1301097
06
Kynningar og önnur mál 2013

a) Staðan á leikskólamálum tekin. Undirbúningur fyrir leikskóla í Flataskóla gengur vel. Verið er að vinna að hugmyndarvinnu með arkitekt. Einnig er unnið að því að öll börn sem verða 18 mánaða í haust bjóðist leikskóladvöl.

b) Fulltrúi foreldra í leikskólanefnd upplýsti um fund fulltrúa foreldrafélaga með bæjarstjóra, forstöðumanni fræðslu- og menningarsviðs og leikskólafulltrúa. Til umræðu voru öryggismál leikskóla, viðhald húsa og lóða, starfsmannamál og þróunarverkefni. Almenn ánægja var hjá fulltrúunum með störf leikskólanna.Í framhaldi af fundinum var ákveðið að hitta bæjarstjóra aftur í haust.

c) Leikskólafulltrúi greindi frá viðræðum við leikskólastjóra sem hefur það að leiðarljósi að brúa bilið vegna leikskólaplássa fram til þess að Flataskóli verði tekinn í gagnið.