Beint í efni

21. fundur

14.03.2013
Leikskólanefnd Garðabæjar

21. fundur

Leikskólanefnd Garðabæjar

í miðrými 3. hæð á bæjarskrifstofum Garðabæjar við Garðatorg

14.03.2013

Kl. 16:30 - 18:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Lúðvík Örn Steinarsson - Formaður
  • Ásta Hrafnhildur Garðarsdóttir - Aðalmaður
  • Heimir Erlingsson - Aðalmaður
  • Kristjana F Sigursteinsdóttir - Aðalmaður
  • Ásdís Magnúsdóttir - Aðalmaður
  • Kjartan Örn Sigurðsson - áheyrnarfulltrúi
  • Anna Magnea Hreinsdóttir - leikskólafulltrúi
  • Ída Björg Unnarsdóttir - fulltrúi starfsmanna
  • Hafdís Guðný Jakobsdóttir - fulltrúi dagforeldra
  • Lovísa Anna Pálmadóttir - fulltrúi foreldra
  • Kristín Sigurbergsdóttir - fulltrúi leikskólastjóra

Ritari

  • Anna Magnea Hreinsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1212053

01

Skóladagatal 2013-2014

Afgreiðsla skóladagatals fyrir veturinn 2013-2014 frestað til næsta fundar.Einnig var beiðni Holtakots og Krakkakots á flutningi á starfsdegi frestað þar sem skóladagatalið liggur ekki fyrir.Leikskólunum er bent á að hafa víðtækt samráð við foreldra vegna færslu á starfsdegi.

Málsnúmer 1302484

02

Umsókn um leyfi til daggæslu barna í heimahúsi

Ólöf Einarsdóttir kt. 210371-3389 fær leyfi til gæslu fjögurra barna til eins árs.

Málsnúmer 1303046

03

Innritunarreglur í ungbarnaleikskóla

Drög að innritunarreglum fyrir ungbarnaleikskóla í Garðabæ lögð fram og rædd.Rætt um að haldinn sé innritunarfundur fyrir ungbarnaleikskólana í Garðabæ einu sinni á ári.

Málsnúmer 1203496

04

Uppbygging leikskóla á árunum 2013-2014

Helstu áherslu í uppbyggingu leikskóla nú verða þær að Sunnuhvoli verður breytt í ungbarnaleikskóla á næstu misserum.Stofnaður verður stýrihópur sem mun hanna og skipuleggja samrekinn leik- og grunnskóla í Flataskóla.Leikskólinn Sjáland mun starfrækja elstu deildina í húsnæði Sjálandsskóla næstu þrjú árin.Verið er að vinna í úthlutun á leikskóladvöl fyrir næsta vetur og mun leikskólafulltrúi taka saman stöðuna fyrir næsta fund.

Málsnúmer 1301097

05

Kynningar og önnur mál 2013

Fyrirspurn barst nefndinni um rekstur ungbarnaleikskóla í Garðabæ frá Bjargir leikskólar.