Uppbygging leikskóla á árunum 2013-2014
Ferill máls
Leikskólanefnd Garðabæjar
01
21. fundur

Helstu áherslu í uppbyggingu leikskóla nú verða þær að Sunnuhvoli verður breytt í ungbarnaleikskóla á næstu misserum.

Stofnaður verður stýrihópur sem mun hanna og skipuleggja samrekinn leik- og grunnskóla í Flataskóla.

Leikskólinn Sjáland mun starfrækja elstu deildina í húsnæði Sjálandsskóla næstu þrjú árin.

Verið er að vinna í úthlutun á leikskóladvöl fyrir næsta vetur og mun leikskólafulltrúi taka saman stöðuna fyrir næsta fund.

Leikskólanefnd Garðabæjar
02
20. fundur
Næstu skref í uppbyggingu leikskóla í Garðabæ

Ída Jensdóttir leikskólastjóri Sjálands sagði frá starfi elstu barnanna í Sjálandsskóla sl. þrjú ár og hugmyndir um áframhaldandi starf.

Að lokinni kynningu Ídu var rætt um næstu skref í uppbyggingu leikskóladeildar Flataskóla.

Einnig var rætt um fjölgun á rýmum fyrir yngstu börnin í Garðabæ.

Leikskólafulltrúa og forstöðumanni fræðslu- og menningarsviðs falið að vinna að undirbúningi og kostnaðargreiningu.

Leikskólanefnd Garðabæjar
03
15. fundur

Möguleikar á uppbyggingu leikskóla á árunum 2013-2014 ræddir.

Ákveðið að ræða málið frekar á sameiginlegum fundi leikskólanefndar og skólanefndar grunnskóla.

Leikskólanefnd Garðabæjar
04
14. fundur
Erindi til umsagnar frá bæjarráði 20. mars sl.

Farið yfir minnisblað frá bæjarráði og helstu efnisatriði minnisblaðsins rædd.

Ákveðið að ræða málið frekar á næsta fundi nefndarinnar.