Beint í efni

20. fundur

07.02.2013
Leikskólanefnd Garðabæjar

20. fundur

Leikskólanefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

07.02.2013

Kl. 16:30 - 18:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Lúðvík Örn Steinarsson - Formaður
  • Ásta Hrafnhildur Garðarsdóttir - Aðalmaður
  • Heimir Erlingsson - Aðalmaður
  • Ásdís Magnúsdóttir - Aðalmaður
  • Kjartan Örn Sigurðsson - áheyrnarfulltrúi
  • Anna Magnea Hreinsdóttir - leikskólafulltrúi
  • Ída Björg Unnarsdóttir - fulltrúi starfsmanna
  • Hafdís Guðný Jakobsdóttir - fulltrúi dagforeldra
  • Kristín Sigurbergsdóttir - fulltrúi leikskólastjóra
  • Birna Dís Ólafsdóttir - varamaður

Ritari

  • Anna Magnea Hreinsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1301560

01

Heimild til að starfrækja deild fyrir 5 ára börn í Sjálandsskóla

Erindi Helga Grímssonar skólastjóra Sjálandsskóla sem vísað var frá bæjarráði til leikskólanefndar

Helgi Grímsson kynnti helstu áherslur í hugmyndum um deild fyrir 5 ára börn í Sjálandsskóla.

Málsnúmer 1203496

02

Uppbygging leikskóla á árunum 2013-2014

Næstu skref í uppbyggingu leikskóla í Garðabæ

Ída Jensdóttir leikskólastjóri Sjálands sagði frá starfi elstu barnanna í Sjálandsskóla sl. þrjú ár og hugmyndir um áframhaldandi starf.Að lokinni kynningu Ídu var rætt um næstu skref í uppbyggingu leikskóladeildar Flataskóla.Einnig var rætt um fjölgun á rýmum fyrir yngstu börnin í Garðabæ.Leikskólafulltrúa og forstöðumanni fræðslu- og menningarsviðs falið að vinna að undirbúningi og kostnaðargreiningu.

Málsnúmer 1302025

03

Sérkennsla - yfirlit

Margrét H. Þórarinsdóttir sérkennslufulltrúi leikskóla kynnti yfirlit yfir sérkennslu í leikskólunum á síðastliðnum árum.

Málsnúmer 1302024

04

Staða upplýsingatækni í leikskólum

Forstöðumaður fræðslu-og menningarsviðs kynnti vinnu við úttekt á upplýsingatækni í grunnskólum og farið var yfir áætlun um endurnýjun tölvubúnaðar í leikskólum Garðabæjar.Umsókn um Nordplusstyrk var lögð fram en sótt verður um samvinnuverkefni eins leikskóla í hverjum vinabæ Garðabæjar tengdu IPad notkun í að efla norræn tengsl og hefðir m.a. í söng og sögum, hefðum og siðum.

Málsnúmer 1208403

05

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2013

Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs fór yfir helstu atriði í fjárhagsáætlun fyrir árið 2013. Afleysing vegna símenntunar var aukin í leikskólum Garðabæjar og launapottur veittur fyrir ákveðin verkefni innan leikskólanna.

Málsnúmer 1302018

06

Umsókn um endurnýjun á leyfi til daggæslu barna í heimahúsi

Eydís Guðrún Sigurðardóttir kt. 151056 -2109 veitt leyfi til gæslu eins barns til eins árs með fyrirvara um að öll gögn berist.