Lundaból, viðbygging og tímalína.
Ferill máls
Leikskólanefnd Garðabæjar
01
23. fundur
Ákveðið hefur verið að endurnýja eina deild á Lundarbóli. Gerð var grein fyrir stöðu verkefnisins, leikskólanefnd mun fylgjast með framgangi þess.
Bæjarráð Garðabæjar
02
45. fundur
Bæjarráð samþykir að vísa málinu til skipulagsnefndar og felur nefndinni að boða að nýju til kynningarfundar með íbúum um málið.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
13. fundur
Lögð fram tillaga að breytingum á leikskólanum Lundarbóli að lokinni grenndarkynningu. Athugasemdir sem bárust vegna tillögunnar lagðar fram. Þær beinast að aukningu umferðar og að breytingum á opnu svæði á Hoffstaðahæð þar sem Lundaból stendur. Lögð fram tvö minnisblöð frá verkfræðistofunni Eflu þar sem annarsvegar er fjallað um bílastæðafyrirkomulag og hinsvegar um hugsanlega umferðaraukningu vegan stækkunarinnar.$line$Einar Ingimarsson arkitekt og Ragnhildur Skarphéðisdóttir gerðu grein fyrir mögulegum viðbrögðum við athugasemdum.$line$Málinu vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
10. fundur
Lögð fram tillaga að stækkun leikskólans Lundarbóls að lokinni grenndarkynningu skv. 1.mgr.44.gr. Skipulagslaga. 8 erindi bárust með athugasemdum undirrituð af alls 24 íbúum við Einilund,Asparlund, Hörpulund, SKógarlund og Víðilund. Athugasemdir beinast fyrst og fremst að aukinni umferð vegna stækkunar leikskólans, auknum umferðarhraða á Hofstaðabraut, stækkun bílastæða og útfærslu á þeim og að leikvellir og útivistarsvæði skerðist.$line$Íbúar við Einilund hafa sent tillögu að breytingu á bílastæðum og hefur sú tillaga verið send til skoðunar hjá verkfræðistofunni Eflu. Lagt fram minnisblað Eflu þar sem sú tillaga hefur verið skoðuð.$line$Skipulagsnefnd leggur til tillaga sé útfærð um að skerma af bílastæðið gagnavart húsum við Einilund. Leggja skal fram tillögu að landlagsmótun alls opna svæðisins með tilliti til útivistargildis og leiksvæða. Skipulagsnefnd leggur til að unnið verði mat á aukningu umferðar á Hofstaðabraut vegna stækkunar leikskólans og að leiðir til að draga úr umferðarhraða verði skoðaðar. Skipualgsnefnd leggur til að boðað verði til fundar með íbúum sem grenndarkynning nær til þar sem tillögur verði kynntar og ræddar.$line$$line$Auður Hallgrímsdóttir leggur fram eftirfarandi bókun: "Eins og réttilega er bent á í athugasemdum frá íbúum er efri lundur Garðabæjar lokað íbúðahverfi með eina innkomu í hverfið frá Karlabraut sem engan vegin þolir slíkt umferðarálag sem fylgir rekstri leikskóla með 130-135 börnum. Réttilega benda íbúar á að í hverfinu eru nú þegar tveir leikskólar sem uppfylla þörf hverfisins fyrir það aldursskeið. Einnig þarf að vera rými fyrir leiksvæði unglinga sem í dag er vel nýtt á því svæði sem annars færi undir bílaplan. Eins og íbúar segja er græna svæðið sem liggur að Lundabóli mikið notað af íbúum til leikja og samveru. Í nýrri deiliskipulagasgerð fyrir Urriðaholt eru áherslur skipulagsins frá bæjaryfirvöldum að umhverfið sé gönguvænt og góðir stígar um holtið, hönnun húsagatna sakpi vistlegt og lifandi rými og hraði bílaumferðar verði takmarkaður með ýmsum aðgerðum einng er áhersla á að Urriðahverfið einkenist af gróðri og grænum svæðum með góðum leiksvæðum við lóðir og í almenningsrými. Fulltrúi Bjartrar Framtíðar telur að eldri hverfin í Garðabæ eigi að njóta sömu framtíðarasýnar og ný hverfi sem verið er að skipuleggja."
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
8. fundur
Lögð fram tillaga að byggingarleyfisumsókn viðbyggingar við leikskólann Lundaból. $line$$line$Gert er ráð fyrir því að leikskóladeildum verði fjölgað úr 3 í 6, að heildarstærð fari úr 490 m2 í 1,143 m2 og að bílastæðum fjölgi úr 22 í 58.$line$$line$Byggingin verður öll á einni hæð og viðbygging verði til norðurs frá núverandi byggingu.$line$$line$$line$$line$Skipulagsnefnd vísar tillögunni til grenndarkynningar í samræmi við 1.mgr.44.gr. Skipualgslaga nr. 123/2010$line$$line$$line$$line$Grenndarkynna skal eigendum húsa í Lundum ofan Karlabrautar og Holtsbúð nr. 79,77, 75, 73, 71, 69,67,65,63 og 61.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
2. fundur
Kynnt tillaga að breytingum á lóð leikskólans Lundabóls sem gerir ráð fyrir viðbyggingu við leikskólann. Vísað til skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.