23. fundur
19.01.2017
Leikskólanefnd Garðabæjar
23. fundur
Leikskólanefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
19.01.2017
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Viktoría Jensdóttir - formaður
- Eymundur Sveinn Einarsson - aðalmaður
- Unnur B. Johnsen - aðalmaður
- Sigríður Finnbjörnsdóttir - varamaður
Starfsmenn
- Halldóra Pétursdóttir - verkefnastjóri
- Kristín Margrét Guðmundsdóttir - fulltrúi dagforeldra
- Lovísa Anna Pálmadóttir - fulltrúi foreldra
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Sigrún Sigurðardóttir - fulltrúi leikskólastjóra
- Auður Skúladóttir - fulltrúi starfsmanna
Ritari
- Halldóra Pétursdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1401509
01
Lundaból, viðbygging og tímalína.
Ákveðið hefur verið að endurnýja eina deild á Lundarbóli. Gerð var grein fyrir stöðu verkefnisins, leikskólanefnd mun fylgjast með framgangi þess.
Málsnúmer 1701161
02
Kennsla í leikskólum gerð sýnilegri.
Leikskólar Garðabæjar eru að vinna metnaðarfullt starf með börnum. Nefndin var sammála um að upplýsa meira um starfssemi leikskólanna. Tillögur komu fram um að auka sýnileika á samfélagsmiðlum og lagt til að þær greinar sem skrifaðar eru séu birtar á heimasíðu og á samfélagsmiðlum Garðabæjar.
Málsnúmer 1612263
03
Starfsáætlanir leikskóla 2016 til 2017
Starfsáætlanir leikskóla lagðar fram. Leikskólanefnd lýsir ánægju með metnaðarfullt starf á næstkomandi ári.