10. (1678). fundur
10. (1678). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
10.03.2015
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Guðrún Arna Kristjánsdóttir - varamaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Bréf UMF Stjörnunnar varðandi áframhaldandi uppbyggingu íþróttamannvirkja, dags. 03.03.15.
Lagt fram.
02
Bréf UMF Stjörnunnar varðandi kynningu á skipulagi íþróttasvæða samkvæmt aðalskipulagi, 02.03.15.
Bæjarráð vísar bréfinu til skipulagsnefndar.
03
Erindi GKG um leyfi til jarðvegsflutninga vegna byggingarframkvæmda.
Í erindinu er farið fram á að nota jarðveg sem tilfellur úr grunni byggingar félags- og íþróttamiðstöðvar GKG, allt að 2.000 m3, til landmótunar á æfingasvæði klúbbsins, sunnan við Hnoðraholt og austan við Vetrabraut. Fyrir liggur samþykki Ríkiseigna fyrir hönd landeiganda.$line$$line$Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti.
04
Fundargerð 1. fundar samráðshóps vegna byggingar félags- og íþróttaaðstöðu GKG.
Lögð fram.
05
Bréf innanríkisráðuneytisins varðandi framlög úr Jöfnunarsjóði á árinu 2014, dags. 26.02.15.
Lagt fram.
06
Umsókn um byggingarleyfi fyrir Furulund 6, dags. 22.01.15.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi vegna stækkunar og breytinga á húsinu við Furulund 6.
07
Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi XXIX. landsþing sambandsins, dags. 02.03.15.
Lagt fram.
08
Bréf leiklistarkennara FG varðandi styrk vegna ferðar leiklistarnema, ódags.
Bæjarráð samþykkir vísa bréfinu til afgreiðslu menningar- og safnanefndar.
09
Bréf sýslumanns varðandi umsögn um umsókn vegna rekstrarleyfis til sölu gistingar að Sandakri 12, dags. 27.01.15.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við að umbeðið leyfi verði veitt en leggur til að leyfið verði veitt til reynslu til eins árs.
10
Bréf sýslumanns varðandi umsögn vegna endurnýjunar á gistileyfi að Hliðsnesi 6, dags. 02.03.15.
Bæjarráð gerir fyrir sitt leyti ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
11
Bréf embættis landlæknis varðandi úttekt á gæðum þjónustunnar á Ísafold, dags. 03.03.15.
Í bréfinu kemur fram að embætti landlæknis áætlar að gera heildarúttekt á gæðum og starfsemi hjúkrunarheimilisins Ísafoldar og er úttektin liður í faglegu eftirliti sem embættið hefur með höndum lögum samkvæmt.
12
Bréf SSH varðandi tillögur til lokaafgreiðslu endurskoðunar vatnsverndar á höfuðborgarsvæðinu, dags. 02.03.15.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar að undangenginni afgreiðslu heilbrigðisnefndar.
13
Niðurstöður fjölmiðlagreiningar Fjölmiðlavaktarinnar janúar -desember 2014.
Lagðar fram.
14
Bréf ríkislögreglustjóra varðandi öryggi upplýsinga í tölvupósti, dags. 05.03.15.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara bréfinu.
16
Erindi Nemendafélags FG um stuðning vegna úrslita í Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.